© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.2.2014 | 11:24 | Stefán | Bikarkeppni KKÍ
Poweradebikarinn 2014 • 3 dagar til stefnu: Bikarúrslitaleikir liðanna
Snæfell er eina liðið sem ekki hefur orðið bikarmeistari af þeim fjórum liðum sem leika núna um helgina í Höllinni. Snæfell fór í úrslit árið 2012 en tapaði þá fyrir Njarðvík. Lítum aðeins á fyrri bikarúrslitaleiki liðanna.

Haukar:
Hafnfirðingar hafa verið reglulegir gestir í Höllinni undanfarin ár. Alls hefur liðið unnið fimm bikarmeistaratitla og þrír þeirra komu á árunum 2005, 2007 og 2010 en einnig léku þær til úrslita árið 2008. Bikarúrslitaleikurinn 2014 er níundi bikarúrslitaleikur Hauka.

Fyrsta ferð Hauka í Höllina var árið 1984 þegar Haukar lögðu ÍS 69-57.

Síðasta ferð Hauka í Höllina var árið 2010 þegar Haukar lögðu Keflavík 83-77.

Haukar er eina kvennaliðið sem hefur mætt í Höllina sem nýliði í efstu deild og unnið bikarinn en þetta gerðist árið 2005.

Bikarúrslitaleikir:
1984: Haukar 69-57 ÍS
1988: Keflavík 76-60 Haukar
1990: Keflavík 62-29 Haukar
1992: Haukar 70-54 Keflavík
2005: Grindavík 69-72 Haukar
2007: Keflavík 77-78 Haukar
2008: Grindavík 77-67 Haukar
2010: Haukar 83-77 Keflavík
2014: Snæfell – Haukar

Snæfell:
Hólmarar sem tróna á toppi Domino´s deildarinar er að fara í annað sinn í Höllina. Árið 2012 lék liðið við Keflavík og tapaði. Bikarúrslitaleikurinn 2014 er annar bikarúrslitaleikur Snæfells.

Fyrsta ferð Snæfells í Höllina var árið 2012 þegar þær töpuðu fyrir Keflavík 77-84.

Síðasta ferð Snæfells í Höllina var árið 2012 þegar þær töpuðu fyrir Keflavík 77-84.

Bikarúrslitaleikir:
2012: Snæfell 77-84 Njarðvík
2014: Snæfell – Haukar

ÍR:
ÍR-ingar eru að fara í áttunda sinn í Höllina núna á laugardag en liðið lék fimm úrslitaleiki á árunum 1971-1989 en allir töpuðust þeir. Það var ekki fyrr en árið 2001 sem bikarmeistaratitillinn kom í hús hjá Grindavík og var það þá í sjöttu tilraun. Síðan þá hafa þeir unnið annan bikarmeistaratitil en það var árið 2007.

Fyrsta ferð ÍR í Höllina var árið 1971 þegar KR lagði þá að velli 87-85.

Síðasta ferð ÍR í Höllina var árið 2007 þegar þeir lögðu Hamar/Selfoss 81-83.

Bikarúrslitaleikir:
1971: KR 87-85 ÍR
1972: KR 85-80 ÍR
1979: KR 87-72 ÍR
1983: Valur 78-75 ÍR
1989: Njarðvík 78-77 (71-71) ÍR
2001: ÍR 91-83 Hamar
2007: Hamar/Selfoss 81-83 ÍR
2014: Grindavík – ÍR

Grindavík:
Bikarúrslitaleikurinn 2014 verður fjórði bikarúrslitaleikur Grindavíkur á síðustu fimm árum. En í síðustu þremur viðureignum hefur Grindavík tapað en í heildina hefur félagið farið sjö sinnum áður í Höllina og er þetta því áttundi bikarúrslitaleikur félagsins.

Fyrsta ferð Grindavíkur í Höllina var árið 1995 þegar þeir lögðu Njarðvík 105-93.

Síðasta ferð Grindavíkur í Höllina var árið 2013 þegar liðið beið lægri hlut gegn Stjörnunni 79-91.

Bikarúrslitaleikir:
1995: Grindavík 105-93 Njarðvík
1998: Grindavík 95-71 KFÍ
2000: Grindavík 59-55 KR
2006: Grindavík 93-78 Keflavík
2010: Snæfell 92-81Grindavík
2011: KR 94-72 Grindavík
2013: Grindavík 79-91 Stjarnan
2014: Grindavík - ÍR
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og ÍBK í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.  Pálmar Sigurðsson brýst á milli Óskars Nikulássonar og Péturs Jónssonar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið