© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.1.2014 | 14:00 | Kristinn
Þjálfarastig ÍSÍ í fjarnámi
Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst í febrúar. Boðið verður upp á nám á 1. 2. og 3. stigi ÍSÍ sem er almmennur hluti þekkingar íþróttaþjálfara og gildir fyrir allar íþróttagreinar.

Vakin skal sérstök athygli á því að í fyrsta sinn er nú nám á 3. stigi í boði sem er sjálfstætt framhald náms á 1. og 2. stigi. 3. stig ÍSÍ er síðasta stigið á framhaldsskólastigi.

Alls fimm kennarar koma að kennslunni á þessu stigi með sérþekkingu á því efni sem þeir kenna s.s. í íþróttasálfræði, íþróttameiðslum, íþróttastjórnun og fleira.

KKÍ hvetur þjálfara innan sinnar aðildarfélaga til þátttöku í náminu en mikill kostur er að hafa menntaða þjálfara í starfinu hjá sem flestum félögum.

Frekari upplýsingar fást á vefnum isi.is og hjá Viðari Sigurjónssyni á netfanginu vidar@isi.is og/eða í síma 460-1467.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið