© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.1.2014 | 14:10 | Kristinn | Stjörnuleikir
Stjörnuleikir 2014 · Elvar Már og Lele með flest atkvæði
KKÍ og einfalt.is stóðu fyrir netkosningu í desember á byrjunarliðum karla og kvenna fyrir Stjörnuleikina 2014, en Stjörnuleikshátíð KKÍ fer fram 25. janúar í Schenkerhöllinni að Ásvöllum.

Nú er kosningunni lokið og komið í ljós hvaða leikmenn íslenskir körfuboltaaðdáendur kusu oftast. Það voru bestu leikmenn Domino's deildar karla og kvenna í fyrri hlutanum sem hlutu flest atkvæði í kosningunni en það eru þau Elvar Már Friðriksson, Njarðvík, og Lele Hardy, Haukum, sem fengu viðurkenningu á dögunum fyrir frábæra frammistöðu fyrir áramót í deildinni.

Þjálfarar liðanna eru þeir þjálfarar í Domino's deildum karla og kvenna sem voru efstir um áramótin sem eru þeir Finnur Freyr Stefánsson, KR og Andy Johnston, Keflavík hjá körlunum. Hjá konum eru það þeir Ingi Þór Steinþórson, Snæfell, og Andy hjá Keflavík sem þjálfa. Liðunum skipt á víxl í tvo hópa, þannig að efsta liðið leikur með liðum í oddasætum og liðið í öðru sæti með liðum í sléttum sætum.

Liðin er því skipuð eftirfarandi leikmönnum og þjálfurum:

Byrjunarlið Stjörnuleiks kvenna:

Icelandair-liðið
Þjálfari Andy Johnston, Keflavík.
Lið: (Keflavík, Grindavík, KR, Haukar)

Leikmenn:
Lele Hardy, Haukar · 332 atkvæði
Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík · 187 atkvæði
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík · 176 atkvæði
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR · 155 atkvæði
María Ben Erlingsdóttir, Grindavík · 144 atkvæði

Domino's-liðið
Þjálfari Ingi Þór Steinþórsson, Snæfell
Lið: (Snæfell, Valur, Hamar, Njarðvík)

Leikmenn:
Hildur Sigurðardóttir, Snæfell · 269 atkvæði
Chynna Unique Brown, Snæfell · 180 atkvæði
Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfell · 177 atkvæði
Kristrún Sigurjónsdóttir, Valur · 133 atkvæði
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, Snæfell · 122 atkvæði


Byrjunarlið Stjörnuleiks karla:

Icelandair-liðið
Þjálfari Andy Johnston, Keflavík.
Lið: (Keflavík, Njarðvík, Stjarnan, Snæfell, Valur, Skallagrímur)

Leikmenn:
Elvar Már Friðriksson, Njarðvík ·  594 atkvæði
Michael Craion, Keflavík · 421 atkvæði
Logi Gunnarsson, Njarðvík · 374 atkvæði
Justin Shouse, Stjarnan · 323 atkvæði
Jón Ólafur Jónsson, Snæfell · 294 atkvæði

Domino's-liðið
Þjálfari Finnur Freyr Stefánsson, KR
Lið: (KR, Grindavík, Haukar, Þór Þ., ÍR, KFÍ)

Leikmenn:
Martin Hermannson, KR · 513 atkvæði
Pavel Ermolinskij, KR · 496 atkvæði
Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Þór Þ. · 330 atkvæði
Terrence Watson, Haukar · 256 atkvæði
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík · 215 atkvæði
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og UMFG í íþróttahúsinu við Strandgötu árið 1983.  Ívar Webster í uppkasti.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið