© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.12.2013 | 15:30 | Kristinn
Verkefni yngri landsliða 2014 · Æfingahópar birtir á morgun
U18 ára lið karla og kvenna munu taka þátt í Evrópukeppni yngri landsliða næsta sumar.

Bæði lið leika í B-deild Evrópukeppninnar sem er gríðarlega sterk og spennandi verkefni framundan hjá okkar efnulegustu leikmönnum.

Að auki munu U15, U16 og U18 ára yngri landslið KKÍ taka þátt í hefðbundnum verkefnum í sumar fyrir hönd lands og þjóðar en lið drengja og stúlkna taka þátt í U15 ára móti í Kaupmannahöfn, Copenhagen Invitational, og U16 og U18 fara á norðurlandamótið í Solna í Svíþjóð.

Eftirfarandi dagsettningar eru á verkefnum 2014
Maí:
U16 og U18 ára drengja og stúlkna, Solna, Svíþjóð.
Norðurlandamót yngri landsliða 28. maí – 1. júní.

Júní:
U15 ára drengja og stúlkna, Kaupmannahöfn.
Copenhagen Invitational 19. – 22. júní.

Júlí
EM U18 kvenna, 17. – 27. júlí, Rúmenía.
Riðill: Sviss, Ísrael, England, Danmörk og Ísland.

EM U18 karlar, 24. júlí – 3. ágúst, Úkraína
Riðill: Eistland, Austurríki, Ísrael, Þýskaland, Georgía og Ísland.

Á morgun verða allir æfingahópar fyrir öll landsliðin og þjálfarateymi þeirra kynnt en æft verður í kringum hátíðarnar framundan.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristrún Sigurjónsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins, fær hér silfurverðlaun sín á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 2009. Ísland vann alla leiki sína nema viðureignina gegn Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið