© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.12.2013 | 8:00 | Kristinn
Stjörnuleikir KKÍ 2014 · Veldu byrjunarliðin!


Líkt og undanfarin ár gefst körfuboltaaðdáendum kostur á að velja byrjunarliðin í Stjörnuleikjum karla og kvenna í ár.

Þeir 5 leikmenn sem fá flest atkvæði í hvert lið hefja leikinn en Stjörnuleikshátíð KKÍ 2014 fer fram að Ásvöllum í Schenkerhöll Hauka laugardaginn 25. janúar. Liðunum var skipt upp á víxl eftir stöðu þeirra í deildinni eða eftir umferð 27. nóv (12 leikir) hjá konum og frá 29. nóv (8 leikir) hjá körlum. Eftirfarandi lið leika því saman:

Konur:
Icelandair liðið: Keflavík, Haukar, Grindavík og KR.
Dominos liðið: Snæfell, Hamar, Valur og Njarðvík

Karlar:
Icelandair liðið: Keflavík, Njarðvík, Stjarnan, Snæfell, Skallagrímur og KFÍ.
Dominos liðið: KR, Grindavík, Þór Þ., Haukar, ÍR og Valur.

Þjálfarar liðanna verða efstu tveir í hvorri deild. Andy Johnston, Keflavík er með bæði karla og kvennalið Icelandair-liðanna og Finnur Freyr Stefánsson, KR, er með Domino's lið karla og Ingi Þór Steinþórsson með Domino's lið kvenna en þjálfararnir velja svo aðra leikmenn í hvert lið.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar en það verður fjör og ýmislegt skemmtilegt í boði að vanda.

Netkosningin í ár er í boði www.einfalt.is líkt og á síðasta ári en einfalt.is sér um utanumhald og vefsíðu kosningarinnar.

Athugið að hver og ein tölva getur kosið einu sinni í netkosningunni og einungis er hægt að velja 2 erlenda leikmenn í hvert byrjunarlið.

Kosning í Stjörnuleik karla og kenna

-Smelltu hér til að kjósa í kvennaliðin-

-Smelltu hér til að kjósa í karlaliðin-
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslensku stelpurnar á rölti í Amsterdan eftir leik við Holland sumarið 2008. Það er mis mikill áhugi meðal leikmanna að láta mynda sig.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið