© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.10.2013 | 15:19 | Kristinn
Þjálfarar óskast fyrir yngri landslið KKÍ
KKÍ auglýsir eftir þjálfurum á eftirfarandi yngri landslið sambandsins fyrir verkefni ársins 2014:

U15 ára stúlkna – árgangur 1999
U16 ára stúlkna – árgangur 1998
U16 ára drengja – árgangur 1998
U18 ára stúlkna – árgangur 1996

Ef ákvörðun verður tekin á seinni stigum að senda U20 ára landslið kvenna og karla í Evrópukeppni verður auglýst sérstaklega eftir umsóknum fyrir þau lið þegar það liggur fyrir.

Jafnframt auglýsir KKÍ eftir áhugasömum aðilum sem vilja koma að starfinu sem aðstoðarþjálfarar á yngri landsliðin.

Verkefni yngri landsliðanna vorið/sumarið 2014:
- Copenhagen Invitational (U-15 strákar og stelpur)
- Norðurlandamót (U-16 og U-18 strákar og stelpur)

Evrópukeppni yngri landsliða 2014:
- U16, U18 og U20 ára landslið karla og kvenna.
- Stefna KKÍ er ávallt að fara með öll lið í Evrópukeppni en ákvörðun um hvaða lið verða send verður tekin fyrir um miðjan nóvember. Þátttaka í Evrópukeppni er háð fjárhagsstöðu sambandsins á hverjum tíma.

Ráðningartímabilið er frá 15. nóvember 2013 fram yfir þau verkefni sem farið verður í sumarið 2014.

Upplýsingar fyrir þjálfara til að hafa í huga:
· Skipulagning á verkefninu er í samráði við afreksnefnd KKÍ og starfsmenn KKÍ.
· Afreksnefnd hefur á undanförnu ári unnið að því að endurskipuleggja starfsemi á afreks- og landsliðsstarfi KKÍ. Verið er að leggja lokahönd á handbók fyrir alla sem að starfinu koma, sem unnið verður eftir með þeim þjálfurum sem verða ráðnir nú til starfa.
· Þjálfari skilar inn ítarlegri skýrslu um verkefnið að því loknu.
· Þjálfari situr opinn fund með fulltrúum KKÍ að loknum verkefnum árið 2014 þar sem öllum áhugasömum gefst kostur á að mæta.

Ferilskrá skal fylgja með umsókninni ásamt eftirfarandi upplýsingum:
- Almennur bakgrunnur, menntun, störf ofl.
- Bakgrunnur í þjálfun ásamt menntun og reynslu í þjálfun.
- Ef umsækjendur vilja sækja um einhvern tiltekinn árgang eða kyn skal fylgja með beiðni um hvaða lið þú vilt þjálfa og hvers vegna það lið.

Senda skal umsóknir inn í síðasta lagi þriðjudaginn 29. október á netfangið kki@kki.is.

Fyllsta trúnaðar verður gætt varðandi umsóknir um starf hjá KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmann A-landsliðs karla og kvenna stilla sér upp í myndatöku.  Aftari röð f.v.; Brenton Birmingham, Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson. Fremri röð f.v.: Birna Valgarðsdóttir og Helena Sverrisdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið