© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.9.2013 | 12:00 | Kristinn | FIBA
HM á Spáni 2014


Nú þegar EuroBasket 2013 er lokið auk hinna álfukeppnanna fjögurra í Asíu, Afríku, Suður-ameríku og Eyjaálfu er ljóst hvaða 20 lið hafa tryggt sér þátttökurétt á HM 2014 sem fram fer á Spáni í lok næsta sumars.

Liðin 20 sem hafa nú þegar trygg sér sæti eru:
1 Gestgjafi: Spánn
1 Ólympíumeistarar: USA
3 lið frá Afríku: Angóla, Egyptaland og Senegal?
4 lið frá Suður-Ameríku: Mexíkó, Púerto Ríkó, Argentína og Dóminíska lýðveldið.?
3 lið frá Asíu: Íran, Filippseyjar og Suður-Kórea
6 lið frá Evrópu: Frakkland, Litháen, Króatía, Slóvenía, Úkraína og Serbía?
2 lið frá Eyjaálfu: Ástralía og Nýja Sjáland

Ennþá eru þó 4 laus sæti eða „Wild-Cards" sem FIBA á eftir að úthluta. Úthlutun mun endanlega fara fram 1.-2. febrúar 2014. Dregið verður svo í riðla 3. febrúar.

Þessi sæti fást ekki ókeypis en til að leggja inn umsókn þarf að reiða fram um €500.000. Þó að sú fjárhæð sé afgreidd þýðir það ekki öruggt sæti á HM. Sem dæmi greiddu 14 þjóðir þessa upphæð fyrir HM 2010.

Þeir þættir sem valnefnd mun skoða eru eftirfarandi:

Íþróttalegir og markaðstengdir þættir:
- Vinsældir körfubolta í landinu
- Gæði og árangur landsliðs á alþjóðavettvangi
- Umsóknir til að halda FIBA viðburði og mót undanfarin ár
- Áhrif þess fyrir íþróttina að landslið viðkomandi lands komist á HM.
- Staðfesting á þátttöku bestu leikmanna landsliðsins

Efnahagslegir þættir:
- Áhugi sjónvarspstöðva á innlendum og alþjóðlegum körfubolta
- Mikilvægi viðkomandi markaðssvæðis hjá styrktaraðilum FIBA
- Mikilvægi viðkomandi lands hjá skipuleggjendum HM

Stjórnsýslulegir þættir:
- Framfylgni á lögum og reglum FIBA
- Gæði á vinnu sérsambandsins
- Stuðningur ríkisstjórnarinnar við sérsambandið
- Þátttaka í alþjóðastarfi FIBA t.d í mótum, nefndum og ráðum og dómarastörfum

Meðal þjóða sem talið er að séu líkleg eru Brasilía, Rússland, Kína, Kanada, og svo einnig Tyrkland, Grikkland og Ítalía. Eina reglan varðandi kvótan er svo að mest má veita þrem evrópuþjóðum sæti af þessum fjórum.

Um HM 2014
Leikið verður á Spáni 2014 dagana 30. ágúst - 4. september í Bilbao, Sevilla, Granada og Las Palmas, Kanaríeyjum. Úrslit fara fram í Barcelona og Madrid.

fiba.com/spain2014.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson kastar boltanum til að hefja leik Hauka og Njarðvíkinga þann 26. janúar 2006.  Það eru Egill Jónasson, UMFN, og Morten Szmiedowicz, Haukum, sem bítast um boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið