© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.9.2013 | 8:00 | Kristinn | Dómaramál
Dómaranámskeið KKÍ
KKÍ mun standa fyrir dómaranámskeiði nú í lok september og mun námskeiðið verða kennt á veraldravefnum með fjarkennslu og lýkur henni með bóklegu prófi á netinu.

Verkleg kennsla fer svo fram í október og verður þá reynt að koma til þátttakenda og gera þeim kleift að taka verklegt próf á heimavelli þeirra í tengslum við fjölliðamót félaga.

Skráning er á netfanginu kki@kki.is og lýkur skráningu föstudaginn 20. september. Þátttökugjaldið er 4.000 kr.

Um er að ræða nýtt fyrirkomulag dómaranámskeiða á vegum KKÍ en byrjað var í fyrravetur að kenna á netinu og tókst það gríðarlega vel. Tilgangurinn er að ná til fleiri þátttakenda og taka námskeiðið á lengri tíma en verið hefur hingað til. KKÍ vonast til að með þessu nýja fyrirkomulagi gefi fleiri sér tíma til að sækja námskeið og taka þannig þátt í eflingu körfuknattleiksíþróttarinnar út um allt land.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið