
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 3.9.2013 | 12:22 | Stefán | KKÍ Ólöglegir leikmenn – breyting á reglugerð um körfuknattleiksmót   Á stjórnarfundi KKÍ í gær mánudaginn 2. september var málið tekið fyrir og er því búið að uppfæra regluglerðina sem tekur á þessu. Á þinginu var einnig óskað eftir því að stjórn sambandsins myndi sekta félög sem nota ólölega leikmenn. Stjórnin er enn að vinna að þessari ósk og mun því tilkynna síðar í mánuðinum hver sektarupphæðin verður. Það sem er dökklitað og undirstrikað er nýtt inn í reglugerð og tekur gildi í dag þriðjudaginn 3. september samkvæmt ákvörðun stjórnarfundar í gær. Reglugerð um körfuknattleiksmót: 8.grein Allir iðkendur félaga innan KKÍ skulu vera skráðir í félagakerfi ÍSÍ. ....... Komi í ljós að leikmaður er ólöglegur, ber félag hans ábyrgð á því. Lið sem teflir fram ólöglegum leilkmanni tapar leiknum. Hafi það verið lægra að stigum skulu úrslit standa óbreytt. Sé það hins vegar hærra að stigum skulu úrslit skráð tuttugu - núll (20-0), andstæðingum í vil. Hér er hlekkur á reglugerðina eins og hún er eftir breytingu. |