© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.9.2013 | 10:53 | Kristinn | FIBA, Landslið
Eistland á EuroBasket 2015
Það voru vinir okkar frá Eistlandi sem eru fyrstir til að tryggja sér sæti á EuroBasket 2015 í Úkraínu eftir samanlagðan sigur á liði Búlgaríu.

Eistar léku með okkur í riðli í fyrrasumar í undankeppni fyrir EuroBasket 2013 þar sem þeir höfnuðu í 4. sæti riðilsins og komust ekki áfram, og léku þar af leiðandi í sumar um sæti eftir 2 ár.

Leikurinn í gær fór fram í SAKU-Arena og voru hvorki fleiri né færri en 7.500 manns mættir í höllina og troðfylltu hana og studdu vel við bakið á sínum mönnum. Eftir að hafa tapað fyrri leiknum í Varna, Búlgaríu, með þremur stigum var ljóst að seinni leikurinn yrði spennandi enda allt undir.

Eistar byrjuð vel og voru 25:10 yfir eftir 1. leikhluta. Bæði lið skoruðu 14 stig í öðrum leikhluta og Búlgarar náðu að vinna þann þriðja með 2 stigum og staðan 50:37 fyrir loka 10 mínúturnar. Eistar tóku síðan völdin í lokaleikhlutanum og náðu 8-2 áhlaupi í byrjun hans og litu aldrei til baka eftir það. Frábær sigur Eista á sterku liði Búlgara og þeir hljóta ríkulega verðlaun fyrir. 13 þjóðir tóku þátt í þessari 1. umferð um eitt laust sæti á EM2015.

Lokatölur í leiknum 61:49 og Eistar unnu einvígið með 9 stigum samanlagt.

Bæði þjálfari Búlgara og leikmenn Eista sögðu eftir leikinn að áhorfendurnir hefðu verið magnaðir og verið 6. 7. og 8. maður Eista í leiknum sem gerði gæfumuninn.

Framundan er svo 2. umferð undankeppni EuroBasket 2015 næsta sumar en Úkraína mun leika á mótinu ásamt Eistum og svo kemur í ljós núna í Slóveníu hvaða lið tryggja sig beint áfram á næsta Evrópumót.

EuroBasket í Slóveníu hefst á miðvikudaginn 4. september og stendur yfir til 22. september.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Emilía Sigurðardóttir
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið