© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.8.2013 | 21:40 | Kristinn | Landslið
EM 2015: Búlgaría sigraði Ísland í kvöld


Ísland tapaði í kvöld gegn sterku liði Búlgaríu í fyrsta leik sínum í undankeppni EuroBasket 2015 í Varna, Búlgaríu.

Eftir jafnræði á fyrstu mínútum leiksins í stöðunni 10-10 tóku Búlgarar völdin og staðan eftir fyrsta leikhluta var 23-13.

Strákarnir okkar áttu ekki sinn besta dag, voru ekki að hitta vel, og Búlgaría tók mikið að fráköstum bæði í sókn og vörn, sem gáfu þeim á endanum 20 stig eftir sóknarfráköst í sókninni. Peter Öqvist sagði eftir leikinn að frákasta baráttan hefði verið dýrkeypt en Búlgaría tók 56 fráköst gegn okkar 22.

Haukur Helgi lenti snemma í villuvandræðum í leiknum og aö auki nýttu andstæðingarnir sínar sóknir vel og hittu mjög vel fyrir utan þriggja stiga línuna, og voru með um 50% nýtingu í hálfleik.

Stigahæstir í íslenska liðinu voru Jakob Örn Sigurðarson með 19 stig, Jón Arnór Stefánsson 13 stig og Hlynur Bæringsson 11 stig.

Næsti leikur verður á miðvikudaginn í Rúmeníu og íslenska liðið er staðráðið í að bæta upp fyrir slæman leik í kvöld og ná í sigur.

Sjá nánar á FIBA Europe (tölfræði, umfjöllun og viðtöl)

Myndir úr leiknum má sjá á Facebook-síðu KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úrvalslið karla á Stjörnuleikshelgi KKÍ 13.desember 2008 sem fór fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Úrvalsliðið hafði sigur á Landsliði Íslands í leiknum 111-113.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið