© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.7.2013 | 9:04 | hsj | Landslið
Ísland-Makedónía kl 10:30


Þriðji og síðasti leikir A-landsliðs karla á 4-landa æfingamóti í Kína verður núna kl. 10.30 eða 18.30 að kínverskum tíma. Í dag er það Makedónía sem eru mótherjar okkar drengja. Makedónía hefur tapað báðum sínum leikjum hér á mótinu en í gær töpuðu þeir fyrir Kínverjum og í fyrrakvöld Svartfellingum. Okkar drengir unnu Svartfjallaland í gær.

Staðan er því þannig núna á síðasta leikdegi mótsins að hart er barist. Kína er með tvo sigra og mæta Svarfellingum á eftir okkar leik, Ísland 1 sigur og 1 tap, Svartfjallaland 1 sigur og 1 tap og svo Makedónía með 2 töp. Drengirnir okkar eiga möguleika á því að enda í 2-4.sæti á mótinu.

Verðlaunafé er fyrir tvö efstu sætin, 1. sæti um 15 milljónir og 2. sæti um 6 miiljónir.

Makedónía endaði í 4.sæti á síðasta EuroBasket í Litháen og er að undirbúa sig fyrir EuroBasket í Slóveníu sem hefst í lok ágúst.

Stefnt er að því að senda upplýsingar og myndir heim á facebook-síðu KKÍ á meðan leik stendur.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslenska landsliðið áritar plaköt fyrir aðdáendur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið