© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.7.2013 | 11:51 | Stefán | FIBA, KKÍ
Nokkur orð frá Yvan Mainini og Cyriel Coomans
Frá útför Ólafs í gær
Yvan Mainini og Cyriel Coomans minnast Óla Rafns.

Yvan Mainini, forseti FIBA World
,,Ég er mjög dapur á þessum degi og það er erfitt fyrir alla að kveðja Ólaf svona snemma. Körfuboltafjölskyldan er að missa mikilvægan og öflugan mann en þó er missir fjölskyldu hans mestur. Ólafur gegndi gífurlega mikilvægu og erfiðu starfi að leiða körfuboltafjölskylduna í Evrópu en það er allt annað en auðvelt. Körfubolti í Evrópu er gífurlega mikils metin og í öllum hornum Evrópu eru stórar körfuboltaþjóðir og að reyna sameina og leiða þær er aðeins verkefni fyrir sterkan einstakling."

,,Ólafur sat í stjórn FIBA og var þar mikilvægur aðili enda forsvarsmaður stærsta álfusambandsins. Þar hafði hann mikil áhrif enda öflugur einstaklingur. Það er erfitt að vera á Íslandi núna að kveðja Ólaf þar sem ég ætlaði að vera seinna í júlí hér á landi að fagna fimmtugsafmæli hans og Gerðar með honum, fjölskyldu og vinum. Allir hjá FIBA eru harmir slegnir enda var Ólafur næst yngsti stjórnarmeðlimur sambandsins.“

,,Þessi öflugi maður hafði marga góða kosti og sátum við oft lengi fram á kvöld að ræða hlutina sem við áttum sameiginlega körfubolta og fjölskyldu. Við áttum gott samband og stundum vorum við ekki sammála en það skyggði aldrei á vináttu okkar. Ólafur var heiðarlegur maður og það verður erfitt að sjá fallega brosið hans ekki aftur.“

Cyriel Coomans, starfandi forseti FIBA EUROPE
,,Ólafur var virkilega góður maður og munum við öll sakna hans. Mínar bænir eru hjá fjölskyldunni hans sem hefur misst frábæran einstakling. Hlutverk Ólafs í Evrópu var gífurlega mikilvægt enda er ekki auðvelt að leiða álfu þar sem mismunandi áherslur eru um allt svæðið. Miklar körfuboltaþjóðir eru um alla Evrópu frá nyðsta odda álfunnar til þess syðsta. Ólafur vildi gera allt fyrir alla í Evrópu og hans sýn á framhaldið var afar skýrt.“

,,Hann var fyrst og fremst íþróttamaður og kynntist leiknum frá öllum sjónarhornum hér á Íslandi. Körfuboltafjölskyldan sem og allur heimurinn eru að missa frábæra manneskju. Ólafur var handviss í hvaða átt körfubolti og íþróttir almennt áttu að þróast og vann hann að því ötullega. Það er erfitt fyrir mig að taka við starfi hans sem forseti FIBA Europe en ég er að leysa af mann sem vissi allt um körfubolta og það eru mörg verkefni framundan sem þarf að vinna að og leysa. Það er okkar hlutverk að halda áfram þeirri góðu vinnu sem Ólafur var byrjaður á því það er margt framundan.“
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Rondey Robinson og Valur Ingimundarson fagna sigri Njarðvíkur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið