© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.5.2013 | 18:49 | hsj
Smáþjóðaleikar · Ísland - Kýpur 52-81
Rétt í þessu voru strákarnir að ljúka sínum síðasta leik á Smáþjóðáleikunum. Kýpur vann stórsigur gegn okkar drengjum 52-81.

Axel Kárason fyrirliði íslenska liðsins skoraði fyrstu stig leiksins og var það í eina skiptið sem Ísland var yfir í leiknum. Fljótlega náðu Kýpurmenn undirtökunum og héldu áfram sínu striki þar til leikurinn var búinn og sanngjarn sigur þeirra því miður staðreynd. Strákarnir hafa lokið keppni á Smáþjóðaleikunum og enda í 3.sæti af fimm þjóðum sem tóku þátt í körfuboltakeppni karla á Smáþjóðaleikunum 2013 og fá þeir bronsið afhent á verðlaunafhendingu á morgun kl.16:15 að íslenskum tíma.

Pétur Sigurðsson þjálfari hafði þetta að segja að leik loknum „Fyrstu mínúturnar voru ágætar og stemmdi í hörkuleik en því miður þá virtumst við verða algjörlega bensínlausir og fótalausir. Við hættum að hitta úr skotunum okkar og fórum að gera okkur lífið mun erfiðara. Þeir gengu á lagið, þeirra sjálfstraust jókst og því fór sem fór.“
Hvernig fannst þér mótið í heild sinni:
„Ótrúlega skemmtilegt mót, vel að málum staðið – útkoman ásættanleg, unnum tvo og töpuðum tveimur og bronsið staðreynd. Þetta mót var góð reynsla fyrir ungu leikmennina okkar.
Nú tekur við landsliðsprógram í júlí – þá er ferð til Kína, æfingaleikir heima við Dani og síðan undankeppni Evrópumótsins í ágúst þar sem við spilum við Rúmeníu og Búlgaríu.“


Strákarnir hafa lokið keppni á Smáþjóðaleikunum og enda í 3.sæti af fimm þjóðum sem tóku þátt í körfuboltakeppni karla á Smáþjóðaleikunum 2013.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ársþingi KKÍ snemma á tíunda áratugnum. Á myndinni má meðal annars sjá Pétur Hrafn Sigurðsson, Hannes S. Jónsson, Guðjón Þorsteinsson, Eyjólf Guðlaugsson, Jón Einarsson, Kolbein Pálsson, Ingólf Jónsson, Sólrúnu Önnu Rafnsdóttur og Sigurð Valgeirsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið