© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.5.2013 | 17:30 | Kristinn | Landslið
Smáþjóðaleikarnir · Öruggur sigur strákanna í fyrsta leik
Íslands lagði lið San Marínó fyrr í dag í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Lúxemborg.

Lokatölur urðu 94:53, og 41 stigs sigur okkar manna staðreynd þar sem allir komust á blað.

Gangur leiksins
Eftir jafnan fyrsta leikhluta sem fór 20:17 hrökk íslenska vélinn í gang og leit aldrei til baka. Ísland vann svo næstu tvo leikhluta 2:8 og 32:9 og innsiglaði sigurinn.

Ægir Þór sjóðandi
Ægir Þór Steinarsson lék frábærlega, var með 24 stig í fyrri hálfleik og hafði hitt úr 7 af 10 skotum sínum, þar af fimm þriggja stiga skotum í sjö tilraunum. Allt liðið setti 15 þrista gegn fjórum andstæðinganna.

Næsti leikur liðsins er svo á morgun gegn heimamönnum í Lúxemborg kl. 18.30 að íslenskum tíma. Stelpurnar leika gegn Möltu kl. 14.00.

Stigaskor Íslands
Ægir Þór 27 stig, Magnús Þór 17 stig, Jóhann Árni 8 stig, Axel 7 stig og 5 fráköst, Justin 7 stig og 5 stolnir boltar, Jón Ólafur 7 stig og 4 fráköst, Ragnar 6 stig og 12 fráköst, Martin 6 stig, Brynjar Þór 6 stig og 5 fráköst, Elvar Már 3 stig.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn A-landsliðs karla hlýða á þjóðsöng Íslands fyrir leik liðsins gegn Finnlandi 6. september 2006.  Frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Friðrik Stefánsson, Jakob Sigurðarson, Jón Nordal Hafsteinsson, Egill Jónasson, Jón Arnór Stefánsson, Páll Axel Vilbergsson, Brenton Birmingham, Fannar Ólafsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og Helgi Már Magnússon.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið