© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.5.2013 | 12:00 | Stefán
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi 4.-7. júlí
Landsmót UMFÍ verður á Selfossi í sumar frá 4.-7. júlí en síðasta Landsmót fór fram sumarið 2009.

Keppt verður karla- og kvennaflokki og er leikið frá föstudegi til sunnudags í Iðu, Vallaskóla og íþróttahúsinu Baulu.

Keppnisform: Liðakeppni þar sem heimilt er að senda eitt lið til keppni. Þ.e. eitt kvennalið og eitt karlalið.

Keppnisreglur:
• Leikið verður eftir reglum KKÍ.
• Leikmaður er löglegur með því liði sem hann er skráður hjá í félagatali Körfuknattleikssambands Íslands.
• Keppnisfyrirkomulag verður ákveðið með tilliti til fjölda skráninga.
• Réttur er áskilinn til að sérsníða stærð valla og leiktíma að fjölda liða og fjölda keppnisvalla.

Stig: 1. sæti í karlaflokki gefur 100 stig. 1. sæti í kvennaflokki gefur 100 stig. Tíu fyrstu lið hljóta stig sem hér segir:
1.sæti = 100 stig, 2.sæti = 90 stig, 3.sæti = 80 stig, 4.sæti = 70 stig, 5.sæti = 60 stig, 6.sæti = 50 stig, 7.sæti = 40 stig, 8.sæti = 30 stig, 9.sæti = 20 stig og 10.sæti = 10 stig.

Þátttökuréttur: Þeir einir hafa rétt til keppni sem eru félagar í ungmennafélagi eða í íþróttafélagi og uppfylla skilyrði viðkomandi sérsambands til keppni með félagi í ákveðinni íþróttagrein þar sem það á við. Keppnislið skulu vera sambandsaðilar UMFÍ og íþróttabandalög. Íþróttabandalög njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og sambandsaðilar UMFÍ.

Meira um Landsmótið:
Undirbúningur vegna mótsins hefur staðið yfir í langan tíma og stefnir Héraðssambandið Skarphéðinn á að halda glæsilegt mót. Mikil og metnaðarfull uppbygging íþróttamannvirkja hefur orðið á Selfossi á undanförnum árum og er óhætt að segja að sú aðstaða sem verður í boði fyrir keppendur á þessu móti sé ein sú besta á landinu. Sveitarfélagið Árborg hefur unnið ötullega að þessari uppbyggingu og lagt sitt á vogarskálarnar til að gera mótið sem glæsilegast.

Landsmótin hafa í gegnum tíðina verið glæsilegar íþróttahátíðir og keppnisgreinar margar, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Á síðasta Landsmóti, sem haldið var 2009, voru keppendur um tvö þúsund og gert er ráð fyrir svipuðum fjölda á Selfossi í ár. Mótunum fylgir jafnan sérstök stemning, en þar hittast ungir sem aldnir og taka þátt í keppni mótsins, rifja upp gamlar og góðar minningar úr starfinu og af fyrri Landsmótum. Alls verða keppnisgreinar á Landsmótinu á Selfossi 25 talsins. Keppt er í einum aldursflokki í karla- og kvennagreinum.

Landsmótið hefst fimmtudaginn 4. júlí með keppni í nokkrum íþróttagreinum. Íþróttakeppnin, sem er uppistaða mótsins, heldur síðan áfram á föstudegi, en aðalþungi keppninnar verður á laugardag og sunnudag. Mótssetning verður á Selfossvelli föstudagskvöldið 5. júlí og hefst kl. 21. Mótsslit verða upp úr miðjum sunnudegi. Ýmsir áhugaverðir viðburðir fyrir utan sjálfa íþróttakeppnina verða á Selfossi þessa daga, fyrir börn og fullorðna. Það er því tilvalið að heimsækja Selfoss 4.–7. júlí og upplifa þessa stemningu. Bærinn mun iða af lífi frá morgni til kvölds og skarta sínu fegursta.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið