© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.5.2013 | 16:20 | Kristinn | Yngri landslið
NM · U18-kvenna í 2. sæti eftir frábæran sigur á Danmörku


Lokaleikur U18-kvenna á NM2013 var gegn Dönum. Liðið var búið að vinna 2 og tala tveim leikjum og því ljóst að endanleg úrslit mótsins myndi að ráðast af leikjum dagins hér í Solna.

Stelpurnar byrjuðu af krafti og fyrir utan stöðuna 0:2 leiddu stelpunar allan leikinn og náðu mest 18 stiga forskoti í leiknum. Ísland vann fyrsta leikhluta 20:14 og þann annan 17:7. Staðan í leikhléi því 37:21 okkur í vil.

Danir komu til baka eftir hlé og unnu þann leikhluta með 10 stigum en okkar stelpur svöruðu því í lokaleikhlutanum og unnu hann 15:7 og sigurinn í höfn, 60:46.

Stigahæstar í liði Íslands:
Guðlaug Björg Júlíusdóttir 14 stig, Marín Laufey Davíðsdóttir 13 stig og 14 fráköst, Lovísa Björt Henningsdóttir 12 stig, 8 fráköst og 5 stolnir boltar, Sara Rún Hinriksdóttir 9 stig og 6 stoðsendingar.



Svíar urðu norðurlandameistarar 2013 í U18-kvenna og Ísland hafnaði í öðru sæti með 3 sigra og 2 töp.

Stelpurnar fögnuðu vel og innilega í leikslok og stóðu sig frábærlega á mótinu eins og sjá má hér að neðan í smá myndbroti

Myndbrot af verðlaunaafhendingunni

Myndbrot af stelpunum fagna eftir verðlaunaafhendingu

Tölfræði leiksins
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Signý Hermannsdóttir sækur hér að körfu Hamarskvenna í Iceland Express-deildinni leiktíðina 2008-09.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið