© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.5.2013 | 20:00 | Kristinn | Yngri landslið
NM · Ísland 2 - Svíþjóð 2 · Samantekt eftir dag 4
Eftir leiki dagsins er það ljóst að stelpu liðin okkar töpuðu sínum leikjum en strákarnir unnu sína leiki. Allir leikirnir gegn heimamönnnum Svíum í dag.

Staðan hjá okkar liðum:
· U16-drengir eru að fara í hreinan úrslitaleik gegn Dönum um titilinn.
· U16-stúlkur eru jafnar Dönum, leika um 3. sætið á morgun. Svíar og Finnar leika hreinan úrslitaleik
· U18-karla leika úrslitaleik um 2. sætið gegn Dönum. Finnar eru taplausir og hafa tryggt sér sigur.
· U18-kvenna jöfn tveim öðrum liðum, ræðst á morgun með lokastöðuna. Svíar eru orðnir meistarar.

Tvennur: Sandra Lind Þrastardóttir skilað tvennu í leiknum með U18-kvenna, setti 16 stig og tók 10 fráköst.

Fyrirkomulagið á mótinu:
Eftir að öll lið hafa leikið gegn hvort öðru verður farið í töfluna og það lið sem situr í efsta sæti verður krýnt norðurlandameistari í sínum flokki. Undanfarin ár hefur verið leikið um 1. sætið og 3. sætið. Nú leika öll lið fimm leiki sem telja til sigurs.

Ísland · Danmörk
Á morgun verður danskur dagur, öll liðin okkar fjögur leika gegn Danmörku.

12. maí · Sunnudagur · (íslenskur tími)
U16 stúlkna · kl. 12:30 (Solna 1)
U18 kvenna · kl. 12:30 (Solna 2)
U16 drengja · kl. 13:30 (Vasalund)
U18 karla · kl. 14:15 (Solna 1)

Framundan er skemmtilegur dagur. KKÍ og Karfan.is munu flytja fréttir af öllum leikjum morgundagsins á báðum vefsíðum og á samfélagsmiðlum KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ægir Þór Steinarsson var valinn mikilvægasti leikmaðurinn á Norðurlandamóti U16 ára drengja 2007.  Hér sést hann með verðlaunagripi sína.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið