© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.5.2013 | 16:25 | Kristinn | Yngri landslið
NM · Auðveldur sigur hjá U16-drengjum gegn Noregi


U16-drengir mættu galvaskir eftir sigur í fyrsta leik í gær og byrjuðu feikivel og léku vel frá fyrstu mínútu. Í stuttu máli var sigurinn aldrei í hættu, Ísland náði 14 stiga forskoti í 1. leikhluta sem fór mest upp í 34 stig í 2. leikhluta.

Leikurinn var einstefna eftir það og auðveldur sigur staðreynd hjá okkar liði. Lokatölur 109:48 fyrir Ísland.



Liðsheildin var frábær, allir búnir að skora eftir 3. leikhluta tvö stig eða meira og spilatímanum dreift vel á liðið. Allir leikmenn tilbúnir í slaginn þegar þeir komu inn á og barátta í liðinu á báðum endum vallarins.

Tölfræði: Kristinn Pálsson 16 stig og 5 fráköst, Kári Jónsson 15 stig og 4 stoðsendingar, Hilmir Kristjánsson 13 og 3 fráköst, Ragnar Friðriksson 11 stig og 4 stoðsendingar. Aðrir skoruðu að minnsta kosti 2 stig eða meira.

Niðurstaða: U16-drengirnir sýndu að þeir eru öflug liðsheild og er útlitið gott fyrir komandi leiki miðað við hvernig þeir hafa spila í sínum fyrstu tveim leikjum og með áframhaldandi góðum leik eiga góða möguleika á góðum úrslitum á mótinu.

Næsti leikur strákanna er gegn Finnlandi kl. 11.00 að íslenskum tíma á morgun.

Myndasafn úr leiknum

Viðtal við Kára Jónsson eftir leik

Tölfræði leiksins
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn í karlaliði 20. aldarinnar hjá KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið