© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.5.2013 | 8:12 | Kristinn | Yngri flokkar
Vika í NM yngri landsliða
Eftir nákvæmlega sjö daga munu 48 leikmenn auk þjálfara og fararstjóra halda á Norðurlandamót yngri landsliða sem fram fer í Solna í Svíþjóð. KKÍ og Karfan.is munu að venju flytja fréttir af mótinu af staðnum og allir leikir verða í beinni tölfræðilýsingu.

Flogið verður út miðvikudagsmorguninn og munu öll lið hefja leik seinnipartinn við komuna til Svíþjóðar.

Leikið er með aðeins öðruvísi sniði í ár, en í stað leikja um 1. og 3. sæti hafa Eistar bæst við og leika því öll lið fimm leiki og mun það lið sem best stendur að vígi að því loknum verða norðurlandameistarar í hverjum flokki fyrir sig.

Ein breyting hefur orðið á upprunalegu vali á U18 ára liði karla en Kristján Leifur Sverrisson, Haukum, þurfti að draga sig úr hópnum vegna veikinda. Pétur Rúnar Birgisson frá Tindastól mun taka sæti hans í staðinn.

Dagskrá mótsins:

8. maí · Miðvikudagur
W-U16 · 17:00 · Iceland - Estonia
M-U16 · 17:00 · Iceland - Estonia
W-U18 · 17:00 · Iceland - Estonia
M-U18 · 19:00 · Iceland - Estonia

9. maí · Fimmtudagur
W-U18 · 14:30 Norway - Iceland
M-U18 · 16:30 Norway - Iceland
W-U16 · 18:30 Norway - Iceland
M-U16 · 20:30 Norway - Iceland

10. maí · Föstudagur
M-U16 · 13:00 Finland - Iceland
W-U16 · 15:00 Finland - Iceland
M-U18 · 17:00 Finland - Iceland
W-U18 · 19:00 Finland - Iceland

11. maí · Laugardagur
M-U16 · 13:00 Iceland - Sweden
W-U16 · 15:00 Iceland - Sweden
W-U18 · 17:00 Iceland - Sweden
M-U18 · 19:00 Iceland - Sweden

12. maí · Sunnudagur
W-U16 · 15:00 Denmark - Iceland
W-U18 · 15:00 Denmark - Iceland
M-U16 · 15:30 Denmark - Iceland
M-U18 · 17:00 Denmark - Iceland

Hægt er að skoða hérna hvaða leikmenn skipa yngri landsliðin á mótinu og hverjir eru þjálfarar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þátttakendur í kynningarleik á hjólastólakörfubolta. Sitjandi frá vinstri: Reynir Kristófersson, Viðar Árnason, Svanur Ingvarsson, Jóhann Kristjánsson, Sigurður Sigurðsson, Þorkell Sigurlaugsson og Geir Magnússon frá Stöð 2. Standandi frá vinstri: Skapti Hallgrímsson Morgunblaðinu, Adolf Ingi Erlingsson RÚV, Valur Jónatansson Morgunblaðinu, John Rhodes, Ólafur Rafnsson formaður KKÍ, Samúel Örn Erlingsson RÚV, Valtýr Björn Valtýsson Stöð 2, Ólafur Eiríksson og Valur Hlíðberg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið