© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.4.2013 | 9:00 | Kristinn | Landslið, Þjálfaramál
Peter Öqvist enduráðinn þjálfari karlalandsliðsins
Svíinn Peter Öqvist hefur verið endurráðinn aðalþjálfari A-landsliðs karla fyrir komandi verkefni sem framundan eru á árinu.

Peter tók við liðinu fyrir Norðurlandamótið 2011 þar sem liðið lenti í 3. sæti og stýrði liðinu í 10 leikja undankeppni síðastliðið sumar.

Peter er þjálfari Sundsvall Dragons í Svíþjóð.

Næstu verkefni
Stóra verkefnið eru leikir í fyrstu leikir liða í keppni um laust sæti á Evrópumótinu 2015 þar sem leikið verður heima og að heiman gegn Búlgaríu og Rúmeníu í upphafi ágúst.

Áður en að því kemur verður farið á Smáþjóðaleika 26. maí - 2. júní. í Lúxemborg.

Við tekur svo æfingaferð á sterkt mót í Kína 12.-22. júlí þar sem leiknir verða 2 leikir við hverja þjóð en það verður gegn Makedóníu, Svartfjallalandi og Kína.

Makedónía lenti í 4. sæti á EuroBasket 2011 í Litháen, Svartfjallaland sigraði okkar riðil í undankeppninni síðasta sumar og Kína eru Asíumeistarar frá í fyrra þannig að um gríðarlega sterkt mót er að ræða.

Dagana 25.-26. júlí verða svo leiknir tveir landsleikir á Íslandi við Dani og að auki munu U-22 ára lið Íslands og Danmerkur mætast.

Leikir í Evrópukeppninni í ágúst:
4. ágúst · Búlgaría - Ísland
7. ágúst · Rúmenía - Ísland
13. ágúst · Ísland - Búlgaría
16. ágúst · Ísland - Rúmenía
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Suðurnesjamennirnir Gunnar Stefánsson og Ragnar Ragnarsson léku með Ármanni og Þrótti Vogum tímabilið 2007-08 í 1. deild karla. Þessi mynd var tekin í fyrsta leik Gunnars með Ármanni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið