© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.3.2013 | 15:01 | Kristinn
Helena leikur í undanúrslitum EuroLeague á eftir
Í dag er komið að stóru stundinni hjá Helenu Sverrisdóttur og liðsfélögum hennar í Good Angels Kosice þegar þær leika í undanúrslitum EuroLeague kvenna.

Nú þegar þetta er farið að styttast í leik þar sem sex tíma mismunur er á milli Íslands og Ekatirinburg í Rússlandi þar sem keppnin fer fram. Leikurinn hefst kl. 21.30 að staðartíma eða kl. 15.30 að íslenskum tíma.

Mótherjarnir eru tyrkneska liðið Fenerbache sem lék með Good Angels í riðlakeppninni í vetur. Þar mættust liðin í tvígang og unnu liðin sitthvorn leikinn, annan með tveimur stigum og hinn með þremur, og því útlit fyrir spennandi leik á eftir. Fenberbache komst í undanúrslitin í keppninni í fyrra sem þær töpuðu og því má búast við að þær ætli sér lengra í ár. Good Angels eru að leika í undanúrslitum í fyrsta sinn.

Fyrri undanúrslitaleiknum er lokið en þar unnu heimastúlkur UMMC Ekatirinburg sigur á Borges Bakset frá Frakklandi.

Bein tölfræðilýsing á leiknum verður að finna á vef FibaEurope.com hérna
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og UMFN í úrslitakeppni íslandsmótsins í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1985. Miklar deilur urðu um lokakörfu leiksins. Hér eru Reynir Kristjánsson, Gunnar Þorvarðarson og Valur Ingimundarson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið