© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.3.2013 | 17:08 | Stefán
Við þinglok
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ sleit körfuknattleiksþingi 2013 nú fyrir stundu í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Ný stjórn var kosin á þinginu til tveggja ára. Hannes S. Jónsson var endurkjörinn formaður og með honum í stjórn munu sitja Erlingur Hannesson, Eyjólfur Þór Guðlaugsson Guðbjörg Norðfjörð, Guðjón Þorsteinsson, Páll Kolbeinsson og Rúnar Birgir Gíslason. Í varastjórn voru kjörin í eftirfarandi röð Bryndís Gunnlaugsdóttir, Einar Karl Birgisson og Lárus Blöndal.
Einar Karl og Lárus er nýir í stjórn en Lárus Ingi Friðfinnsson og Guðjón Guðmundsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.

Fjölmörg mál voru til umræðu á þinginu og voru miklar umræður í nefndum á föstudagskvöldið. Kosningar fóru svo fram á laugardag og voru miklar umræður þar um ákveðin mál og jafnar kosningar.

Meðal breytinga var samþykkt á fjölda erlendra leikmanna í efstu deild karla og frá og með næsta tímabili má einungis vera einn erlendur leikmaður inn á vellinum í einu. Verður þá sama fyrirkomulag í efstu deild karla, efstu deild kvenna og næst efstu deild karla.

Þá var fyrirkomulagi í fyrirtækjabikar breytt og verður hann nú leikinn fyrir upphaf Íslandssmóts og er átta liða úrslitum bætt við.

Stúlknaflokkur og 11. flokkur verður leikinn í deildarkeppni í stað fjölliðamóts áður.

Þá komu meðsl annars fram tvær þingsályktunartillögur.

Þingsályktunartillaga:
Körfuknattleiksþing 15.-16. mars 2013 beinir því til stjórnar KKÍ að skoða möguleika á að bæta keppnisfyrirkomulagi í MB 11ára, 7. og 8.flokk. Stjórnin skal skipa nefnd á fyrsta fundi eftir körfuknattleiksþing sem tekur málefnið til umfjöllunar og kemur með tillögu til stjórnar.
Sé það niðurstaða nefndarinnar og stjórnar KKÍ að breyta núverandi fyrirkomulagi skal stjórn KKÍ gera þær breytingar á reglugerðum og tilkynna aðildarfélögum sem allra fyrst.
Þingsályktunartillaga

Körfuknattleiksþing 15.-16. mars 2013 hafnar alfarið framkomnum hugmyndum um stofnun Happdrættisstofu.
Ennfremur hvetur þingið íþróttahreyfinguna til þess að standa vörð um Íslenska getspá.

Nýjar reglugerðir munu verða birtar á vef KKÍ í næstu viku.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sigurður P. Gíslason (t.h.) og Pétur Rögnvaldsson (t.v.) voru aðalhvatamennirnir að baki stofnunar körfuknattleiksdeildar KR árið 1956 og léku með félaginu á gullaldarárum þess. Pétur, sem var fyrsti formaður deildarinnar (Sigurður var varaformaður), fluttist seinna til Hollywood og lék í kvikmyndinni
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið