© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.5.2002 | 10:20 | bl
Körfuboltabúðir í Reykjavík 3.-7. júní
Dagana 3. til 7. júní verða Ágúst Björgvinsson og And1 með körfuboltabúðir fyrir 12-18 ára drengi og stúlkur. Þetta er annað árið sem búðirnar eru haldnar undir stjórn Ágústs Björgvinssonar. Hann hefur aflað sér reynslu í nokkrum mjög virtum körfuboltabúðunum í Bandaríkjunum eins og Duke University Basketball Camp og Five-Star Basketball Camp.

Búðirnar eru byggðar á bandarískri fyrirmynd þar sem leikmenn fara í gegnum stöðvaþjálfun, hlusta á fyrirlestra og spila leiki. Í búðirnar koma Todd Triplett þjálfari og umboðsmaður með atvinnuleikmenn sem og þjálfarar frá Bandaríkunum. Einnig munu nokkrir vel þekktir íslenskir þjálfarar og leikmenn mæta á staðinn. Þar má nefna Pétur Guðmundsson eina Íslendinginn sem hefur spilað í NBA deildinni, Benedikt Guðmundsson unglingalandsliðsþjálfara, Jón Arnór Stefánsson besta leikmann Epson-deildarinnar síðastliðin tvö ár, Eggert Garðarsson besta þjálfara Epson-deildarinnar 2002, Friðrik Inga Rúnarsson landsliðsþjálfara karla, Inga Þór Steinþórsson mfl. þjálfara KR, Svala Björgvinsson NBA sérfræðing og fleiri.

Að loknum búðunum frá 19:30 til 21:00 daglega fá svo þátttakendur búðanna tækifæri til að spreyta sig á móti bandaríkjamönnunum og Epson-deildarmönnum þegar skipt verður í lið.

Allir þátttakendur fá boli merkta körfuboltabúðunum. Einnig eru veitt verðlaun fyrir bestu vítaskyttu, 1 á 1 meistara, 3 á 3 meistara, 5 á 5 meistara, duglegasta leikmann búðanna og besta leikmann búðanna.

Búðirnar verða frá 16:30 til 19:30 í íþróttahúsi KR við Frostaskjól.
Verð: 9000 kr. 10% systkinaafsláttur

Skráning fer fram hjá KKÍ með tölvupósti kki@kki.is eða í síma 514-4100

Aftur síðar í sumar:
Körfuboltabúðir 6. ágúst til 9. ágúst fyrir 8 til 11 ára og 12 til 18 ára,
12. ágúst til 16.ágúst 6 til 10 ára
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Arnþór Guðmundsson og Ægir Steinþórsson, fyrirliðar Fjölnis í 11. fl. kk., lyfta hér bikarnum eftir að hafa lagt Hauka að velli 80-53 í úrslitaleik Íslandsmótsins. Var þetta fjórða árið í röð sem Fjölnir vinnur í þessum árgangi(´91) og ávallt var það lið Hauka sem lenti í öðru sæti.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið