© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.9.2012 | 13:55 | Stefán | Landslið
Lokaskotið geigaði
Haukur Helgi í barátunni við Slóvakana. En hann skoraði 7 stig í leiknum
Ísland tapaði fyrir Slóvakíu í hörkuleik 84-86 í Laugardalshöll á sunnudag. Fyrri leik liðanna vann Ísland með sex stigum ytra og því ljóst að um hörkuleik yrði að ræða. Svo reyndist raunin og það var ekki fyrr en á lokasekúndunum að úrslitin réðust.

Jón Arnór Stefánsson gat jafnað leikinn í leikslok en með ótrúlegum hætti fór boltinn ekki ofaní og Slóvakarnir náðu í sinn fyrsta sigur í þessari undankeppni.

Stigahæstur hjá Íslandi var Hlynur Bæringsson en hann var með myndarleag tvennu, 21 stig og 12 fráköst. Einnig gaf hann fimm stoðsendingar og varði þrjú skot. Jón Arnór Stefánsson var með 20 stig og Pavel Ermolinskij setti 12 stig.

Næsti leikur Íslands er gegn Ísrael n.k. miðvikudag og hefst leikurinn kl. 17.30 að íslenskum tíma og verður hann í beinni á Ólympíurás RÚV.

Tölfræði leiksins.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið