© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.8.2012 | 21:35 | U18 karla
Tap gegn Portúgal í framlengdum spennuleik
Íslensku drengirnir í U18 ára liðinu í körfuknattleik töpuðu nú fyrr í kvöld gegn Portúgal í hreint út sagt mögnuðum spennuleik á Evrópumótinu í Sarajevo.

Eftir framlengdan leik þá voru það Portúgalska liðið sem tryggði sér 2ja stiga sigur í blálokin. Sárt tap því staðreynd en íslenska liðið var mikið mun ferskara í dag heldur en í gær gegn Hollandi.

Fyrsti leikhlutinn var hreint afbragð hjá íslensku drengjunum og greinilegt að menn voru klárir í slaginn. Eftir fína rispu komust okkar menn 11 stigum yfir en lið Portúgals er baráttuglatt og kom sér inn í leikinn aftur með fínum leik. Eftir leikhlutann var staðan þó 14-20 fyrir okkar mönnum og ljómandi góður bragur á liðinu.

Annar leikhluti varð svo okkur erfiður enda fóru leikmenn Portúgals að hitta ansi vel fyrir utan 3ja stiga línuna. Vandræðagangur var á íslenska liðinu á köflum og það nýttu leikmenn Portúgals sér til hins ítrasta og komust 5 stigum yfir. Baráttan var þó til staðar hjá okkar mönnum og eftir fallega flautukörfu frá Matthíasi Orra þá var munurinn ekki nema eitt stig þegar hálfleiksflautan gall 39-40.

Þriðji leikhlutinn einkenndist af mikilli baráttu en okkar lið var að ströggla nokkuð sóknarmegin. Góð skot voru ekki að detta en menn héldu sér inní leiknum á fínum varnarleik. Þegar að leikhlutanum lauk þá leiddu Portúgalar með 6 stiga mun 57-51 og leikurinn galopinn.

Fjórði leikhlutinn var furðulegur en jafnframt æsispennandi og skemmtilegur. Portúgal náði sínu mesta forskoti og leiddu með 8 stigum en með frábærum endasprett jafna okkar menn leikinn undir blálokin með frábærri 3ja stiga körfu frá Matthíasi Orra rétt þegar lokaflautan gall! Mikill barningur var á lokakaflanum og spennan mikil í húsinu.

Í framlengingunni fengu okkar menn öll færi á því að slíta sig frá Portúgalska liðinu en nýttu þau tækifæri ekki því miður. Þegar 26 sekúndur eru eftir af leiknum og staðan jöfn 75-75 þá eru Portúgalar með knöttinn, okkar menn spila flotta vörn og Portúgal missir knöttinn er 9 sekúndur eru eftir. Tekið er leikhlé og íslenska liðið tekur skot þegar rétt um 3 sekúndur eru eftir en hitta ekki. Portúgal fær innkast undir eigin körfu og 1.6 sekúndur eftir þegar þeir henda langri sendingu fram yfir alla íslensku leikmennina og fá lay-up fyrir leiknum!
Sorglegur endir en það verður að taka það jákvæða út úr þessu öllu saman sem var baráttan og viljinn. Liðið gerði mistök á lokakaflanum EN menn setja það í reynslubankann sem er ómetanlegt fyrir þessa drengi. Eftir leik voru menn niðurlútir en jafnframt staðráðnir í að klára síðustu 2 leikina með stæl, halda áfram á sömu braut enda margt jákvætt í leiknum í kvöld.

Matthías Orri átti aftur stórleik fyrir íslenska liðið og setti 20 stig auk þess að nýta skotin sín einstaklega vel. Valur Orri átti flottar rispur og setti niður góðar körfur á þeim kafla sem íslenska liðið jafnar leikinn í 4.leikhluta. Hann var með 15 stig og 8 fráköst í þessum leik. Stefán Torfason var öflugur undir körfunni með 13 stig og 12 fráköst .

Tölfræði leiksins

Á morgun er frídagur hjá strákunum en á laugardag mæta þeir Slóvökum í krosspili og sigurvegarinn spilar um 13.-14. sætið við sigurvegarann úr viðureign Svía og Rúmena. Tapliðin mætast um 15.-16. sætið, en allir leikir um sæti fara fram á sunnudag.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Guðjón Skúlason í leik með ÍRB í Evrópukeppninni haustið 1999
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið