© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.7.2012 | 21:46 | Kristinn | Yngri landslið
Sigrar hjá A-landsliði karla og U16 ára liði stúlkna
Í dag voru íslensk landslið að keppa á tveimur vígstöðvum.

U16 stúlkna: EM
Á Gíbraltar sigraði U16 ára lið stúlkna undanúrslitaleik sinn í Evrópukeppninni í C-deild.

Þær léku gegn Gíbraltar og var sigurinn aldrei í hættu, staðan í hálfleik var 60:9 fyrir Íslandi og endaði leikurinn 107:20. Þær mæta því Kýpur á morgun í úrslitaleiknum, en þess ber að geta að liðin léku fyrr í riðlakeppninni þar sem Ísland sigraði 66:43, og því vonandi að íslenska liðið leiki sama leik á morgun kl. 17.00 að íslenskum tíma. Hægt verður að fylgjast með leiknum í lifandi tölfræði á KKI.is.

Helstu leiðtogar liðsins í dag í stigaskori og tölfræði:
Sara Rún 15 stig, 7 fráköst og 4 stolnir boltar
Guðlaug 14 stig og 3 stoðsendingar
Sólrún G. 14 stig og 7 fráköst
Sandra 10 stig og 9 fráköst og 4 stoðsendingar
Elsa Rún 8 stig, 17 fráköst og 4 stolnir boltar

A-landslið karla: Æfingaferð
Íslenska liðið lék gegn úrvalsliði litháeskra leikmanna og hafði sigur.

Leikurinn er upphitun fyrir æfingaleik gegn ólympíuliði Litháens en leikurinn fer fram á þriðjudaginn kemur kl. 16.00 að íslenskum tíma og fer fram í Siemens höllinni í Vilnius.

Stigahæstu menn í dag voru:
Hlynur Bæringsson 19 stig og 6 fráköst
Jón Arnór 14 stig og 9 stoðsendingar
Finnur Atli 15 stig
Logi  13 stig
Pavel 8 stig og 6 stoðsendingar
Helgi Magg 7 stig
Haukur Helgi 6 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar
Sigurður Gunnar 4 stig
Ægir Þór 2 stig og 3 stoðsendingar
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Heiðrún Kristmundsdóttir, leikmaður U18 kvenna, í myndatöku fyrir NM 09.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið