© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.7.2012 | 21:10 | FÍR
A-landslið karla heldur til Litháen í fyrramálið
Icelandair er styrktaraðili landsliða KKÍ
A-landslið karla heldur til Litháen í fyrramálið þar sem leiknir verða tveir leikir ásamt því sem liðið fær að æfa við bestu aðstæður.


Annars vegar verður leikir gegn liði skipað atvinnumönnum frá Litháen og hins vegar gegn Ólympíuliði Litháen.

21. júlí Úrvalslið Litháen – Ísland • 20:00 ( 17:00 íslenskum tíma )

24. júlí Litháen – Ísland í Siemens höllinni í Vilnius • 19:00 ( 16:00 að íslenskum tíma )

Heimamenn búast við um 8-9.000 áhorfendum á leikinn í Vilnius en eins og menn vita þá er körfubolti þjóðaríþrótt í Litháen og stuðningur við landsliðið er gríðarlega mikill. Leikurinn verður í beinni sjónvarpsútsendingu í Litháen.

Jakob Örn Sigurðarson átti ekki heimangengt þar sem hann og hans kona eiga von á barni á næstu dögum. Helgi Jónas Guðfinnsson aðstoðarþjálfari átti heldur ekki heimangengt í þessa ferð.

Hópinn skipa eftirtaldir:

4 • Brynjar Þór Björnsson KR, 15 landsleikir

5 • Haukur Helgi Pálsson Manresa, 3 landsleikir

6 • Árni Ragnarsson Fjölnir, Nýliði

7 • Finnur Atli Magnusson KR, 8 landsleikir

8 • Hlynur Bæringsson (C) Sundsvall, 53 landsleikir

9 • Jón Arnór Stefánsson CAI Zaragoza, 53 landsleikir

10 • Helgi Már Magnússon KR, 66 landsleikir

11 • Axel Kárason Vaerlose, 4 landsleikir

12 • Pavel Ermolinskij Norrköping Dolphins, 22 landsleikir

13 • Ægir Þór Steinarsson Newberry College, USA, 2 landsleikir

14 • Logi Gunnarsson Angers BC 49, 81 landsleikur

15 • Sigurður Gunnar Þorsteinsson Grindavík, 27 landsleikir

Þjálfari: Peter Öqvist
Aðst.þjálfari: Pétur Már Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Haukur Már Sveinsson
Fararstjóri: Hannes Sigurbjörn Jónsson
Fararstjóri: Friðrik Ingi Rúnarsson

Þessi ferð er mikilvægur undirbúningur fyrir það skemmtilega og um leið krefjandi verkefni sem framundan er í Evrópukeppninni sem hefst 14. ágúst með leik Íslands og Serbíu í Laugardalshöll. Litháen er eins og Serbía á topp 10 lista yfir sterkustu körfuboltaþjóðir heims.


Hér er hægt að lesa um leikmannahóp Litháa og hvernig þeim gekk í umspilinu á dögunum fyrir London 2012:

Þeirra þekktustu leikmenn:

Linas Kleiza

Sarunas Jasikevicus

Jonas Valanciunas

Darius Songaila

Rimantas Kaukenas

Martynas Pocius

Hér er myndbrot frá leik Litháen og Serbíu frá Eurobasket 2011 sem fram fór í Litháen:


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Verðlaunahafar á lokahófi KKÍ 1988, í gamla Broadway í Mjódd.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið