© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.6.2012 | 15:59 | Kristinn
Landsliðsþjálfarastöður yngri landsliða
KKÍ auglýsir eftir þjálfurum á eftirfarandi yngri landslið sambandsins fyrir verkefni ársins 2013:

U15 ára stúlkna – árgangur 1998
U15 ára drengja – árgangur 1998
U18 ára stúlkna – árgangur 1995
U18 ára drengja – árgangur 1995

Verkefni yngri landsliðanna vorið/sumarið 2013:
-Copenhagen Invitational (U-15 strákar og stelpur)
-Norðurlandamót (U-16 og U-18 strákar og stelpur)
-Mögulega fara einhver lið í Evrópukeppni en ákvörðun um það verður tekin í október næstkomandi.

Ráðningartímabilið er frá 15. júlí 2012 fram yfir þau verkefni sem farið verður í sumarið 2013.

Upplýsingar fyrir þjálfara til að hafa í huga:
· Skipulagning á verkefninu er í samráði við afreksnefnd KKÍ og starfsmenn KKÍ.
· Afreksnefnd hefur á undanförnu ári unnið að því að endurskipuleggja starfsemi á afreks- og landsliðsstarfi KKÍ. Verið er að leggja lokahönd á handbók fyrir alla sem að starfinu koma, sem unnið verður eftir með þeim þjálfurum sem verða ráðnir nú til starfa.
· Afreksnefnd hefur m.a. fengið Peter Öqvist til að koma að vinnu sem viðkemur aðferðarfræði og samræmingu á landsliðunum okkar. Þjálfarar sem verða ráðnir þurfa að vera tilbúnir að sitja nokkra fundi og fylgjast með æfingum A-landsliðs karla í júlí og ágúst.
· Þjálfari skilar inn ítarlegri skýrslu um verkefnið að því loknu.
· Þjálfari situr opinn fund með fulltrúum KKÍ að loknum verkefnum árið 2013 þar sem öllum áhugasömum gefst kostur á að mæta.

Ferilskrá skal fylgja með umsókninni ásamt eftirfarandi upplýsingum:
- Almennur bakgrunnur, menntun, störf ofl.
- Bakgrunnur í þjálfun ásamt menntun og reynslu í þjálfun.
- Ef umsækjendur vilja sækja um einhvern tiltekinn árgang eða kyn skal fylgja með beiðni um hvaða lið þú vilt þjálfa og hvers vegna það lið.

Senda skal umsóknir inn í síðasta lagi mánudaginn 9. júlí á netfangið kki@kki.is.

Fyllsta trúnaðar verður gætt varðandi umsóknir um starf hjá KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Benedikt Guðmundsson leggur á ráðin í leikhléi í úrslitaleik 18 ára landsliða karla á NM 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið