© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.6.2012 | 15:00 | Kristinn | Landslið
Sjálfboðaliðar fyrir EM í ágúst og september
Hefur þú áhuga á körfubolta?
Langar þig til að vinna við undirbúning og framkvæmd á landsleikjum Íslands í Evrópukeppninni í haust?

Ef svo er þá leitar KKÍ að hressum og áhugasömum sjálfboðaliðum á öllum aldri til hjálpa til og taka að sér ýmis störf í kringum komandi Evrópkeppni hér heima, bæði fyrir erlendu liðin sem og íslenska landsliðið.

Um er að ræða meðal annars:
- Aðstoð í kringum æfingar erlendra liða fyrir leiki
- Starfsmenn í öll almenn störf á leikjunum sjálfum, moppur, gæslu, uppsetningu umgjarðar leiks, starfsmenn í sjoppu og í aðstoð í miðasölu.
- Annað tilfallandi í kringum aðdraganda leikjanna til að mynda akstur og útréttingar

Áhugasamir vinsamlegast sendið helstu upplýsingar um ykkur eins og nafn, aldur, gsm og netfang á kki@kki.is en einnig er hægt að hafa samband fyrir nánari upplýsingar.

Um er að ræða tímabilið 13. ágúst - 10. september að hluta til eða í heild, allt eftir hentugleika hjá hverjum og einum.

Heimaleikir Íslands í haust. Allir leikir í Laugardalshöllinni:
14. ágúst gegn Serbíu kl. 20:00
21. ágúst gegn Ísrael kl. 19:15
27. ágúst gegn Eistlandi kl. 19:15
02. september gegn Slóvakíu kl. 15:45
08. september gegn Svartfjallalandi kl. 15:45
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik KR og Hauka í Hagaskóla árið 1983.  Hálfdan Þórir Markússon og Garðar Jóhannsson kljást.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið