© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.5.2002 | 12:29 | bl
Ólafur Rafnsson hlaut glæsilega kosningu í stjórn FIBA
Nú rétt í þessu var að ljúka stjórnarkjöri á stofnþingi FIBA-Europe í Oostende í Belgíu, þar sem Ólafur Rafnsson formaður KKÍ var í framboði. Skemmst er frá því að segja að Ólafur hlaut glæsilega kosningu inn í fyrstu stjórn þessa nýja sambands.

Ólafur hlaut 40 atkvæði af 49 mögulegum og var 8. efsti maður í kjörinu, en alls voru 23 menn kjörnir í stjórnina. Ólafur er fyrsti Íslendingurinn sem kjörinn er í stjórn álfu eða heimssambands í körfuknattleik.

Síðar í dag verður fyrsti fundur hinnar nýju stjórnar, en á þeim fundi er gert ráð fyrir að Patrick Baumann aðstoðarframkvæmdastjóri FIBA verði ráðinn framkvæmdastjóri FIBA-Europe til bráðabirgða. Á fundinum verður einnig skipað í unglinganefnd hins nýja smbands, en Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri KKÍ gefur kost á sér í nefndina, en hann átti sæti í unglinganefnd FIBA.

kki.is óskar Ólafi Rafnssyni hjartanlega til hamingju með glæsilegt kjör.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Breiðabliksmenn settu nýtt gólf á Smárann sumarið 2008 sem er stórglæsilegt og aðeins eru körfuboltalínur merktar þar sem sjálfur völlurinn er og engar aðrar línur sem skarast þar inn á.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið