© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.5.2012 | 9:22 | Kristinn | KKÍ
Golfmót körfuknattleiksmanna 2012 · Borgarnes
Mótastjóri hins árlega golfmóts körfuknattleiksmanna, Ríkharður Hrafnkelsson, hefur undirbúið mótið í ár og mun það fara fram á hinum stórskemmtilega og fallega velli í heimabyggð Skallagríms, Hamarsvelli í Borgarnesi þann 8. júní næstkomandi.

Þetta er í 15. sinn sem mótið er haldið en það var fór fyrst fram 1998.

Mótið verður með hefðbundnu sniði. Ræst er út af öllum teigum samtímis og hefst mótið kl. 11:00 og er áætlaður leiktími ca. 5 klst.. Þátttökugjald er kr. 4.400 kr. á mann.

Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíman hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar félaga eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Makar eru að sjálfsögðu einnig velkomnir. Áhugsamir eru hvattir til að áframsendið upplýsingar um mótið á alla þá sem þið teljið að eigi erindi í það.

Leiknar verða 18 holu punktakeppnir, bæði með og án forgjafar, þar sem hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Skráning og nánari upplýsingar er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 660-3170 eða á netfangið: rikkihr@visir.is

Að venju er öll aðstoð við útvegun verðlauna mjög vel þegin

Undanfarin ár hefur mótið verið mjög vel sótt og því ráðlagt að panta tímanlega.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Teitur Örlygsson í baráttu við Bjarna Magnússon í leik Njarðvíkur og Grindavíkur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið