© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.3.2012 | 15:00 | Kristinn | Fræðslumál
Málþing um íþróttadómara
ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar.

Þingið fer fram á miðvikudaginn kemur 21. mars og hefst kl. 17.00. Áætluð dagskrálok eru um kl. 20.00.

Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

·Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?
·Hver er áhrifamáttur og ábyrgð þjálfara og fjölmiðla?
·Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi?
·Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?
·Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?

Þessum spurningum verður reynt að svara á málþinginu, m.a. í vinnuhópum þar sem allir hafa möguleika á þátttöku.

Niðurstöður hópavinnunnar verða birtar eftir að hópavinnu lýkur.

Forystumenn þessa málaflokks hjá ofangreindum sérsamböndum verða í panel í lok málþingsins.

Skráning er í síma 514-4000 eða á linda@isi.is. Í boði verður kaffi og léttar veitingar.

Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

Dagskrá málþingsins:

17.00 Ávarp/setning
17.05 Sameiginlegir þættir
17.15 Fulltrúar íþróttagreinanna – kynning
17.40 Skilgreining hópavinnu
17.45 Hópavinna
A) Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?
B) Hver er áhrifamáttur og ábyrgð
a) Þjálfara?
b) Fjölmiðla?
C) Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi (hindrum brottfall)?
D) Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?
E) Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?

18.45 Kaffihlé
18.55 Niðurstöður hópavinnu
19.25 Fyrirspurnir og umræður – (Panell)
19.50 Samantekt
20.00 Málþingslok

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Linda Stefánsdóttir úr ÍR og Valsmaðurinn Magnús Matthíasson voru útnefnd bestu leikmenn efstu deild Íslandsmótsins vorið 1992 á lokahófi KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið