© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.4.2002 | 13:45 | bl
Valdimar Helgason að braggast
Sett hefur verið upp síða þar sem lesendur geta sent Valdimari Erni Helgasyni, leikmanni KR, kveðju. Eins og flestir vita varð Valdimar fyrir fólskulegri líkamsárás á dögunum sem leiddi til þess að það blæddi inn á heila hans. Valdimar er allur að braggast en fréttir af heilsu hans munu birtast á KR-síðunni.

Ólafur Rafnsson formaður KKÍ sendir Valdimar eftirfarandi kveðju:
Körfuknattleikshreyfingin er lítið og samheldið samfélag. Við tökumst á í kappleikjum, gleðjumst og grátum þegar það á við, deilum og stöndum saman þegar slíkt á við. En sama hversu harðvítugir andstæðingar kunna að vera í kappleikjum, þá stendur hreyfingin saman einhuga þegar persónulega harmleiki einstaklinga innan okkar vébanda ber að garði. Frétt um að Valdimar Helgason, hinn litríki og skemmtilegi leikmaður KR-liðsins, hafi lent í fólskulegri líkamsárás nýlega sló okkur öll óhug. Ég veit að hreyfingin stendur einhuga að baki Valdimari í erfiðleikum sínum við að ná bata, og ég vil fyrir hönd okkar hjá KKÍ senda honum einlægar baráttukveðjur með von um að hann nái fullum bata, og troðslur hans og tilþrif fái að ylja okkur aftur sem fyrst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Tamara Bowie, Grindavík, og Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík, eigast við í leik liðanna tímabiði 2006-2007
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið