© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.2.2012 | 16:50 | Kristinn | FIBA
FIBA Europe: Leikmenn ársins
Alba Torrens frá Spáni og núverandi leikmaður Glatasaray, er „Besti leikmaður ársins“ 2011 hjá konunum.

Í kjörinu í ár fékk hún fleiri atkvæði frá almenningi en næstu þrjár til samans. Dómnefnd valdi Mariu Stepanovu frá Rússalandi í fyrsta sæti og Alba lenti í öðru sæti, en samanlagt vægi skilaði henni fyrsta sætinu að þessu sinni.

Alba sem er 22 ára, fagnaði sigrum með liði sínu Perfumerias Avenida frá Spáni, bæði í Euroleague og heimafyrir í spænsku deildinni á síðasta ári þar sem Alba lék stórt hlutverk. Í úrslitum Euroleague var hún kjörin besti leikmaður „Final-Four“ lokahlutans og hún lék með landsliði sínu á EM í sumar.

Alba varð fyrir meiðslum snemma á þessu tímabili og mun líklega missa af því sem eftir lifir, en ætti að geta glaðst yfir þessari viðurkenningu á meðan hún jafnar sig.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Teitur Örlygsson í baráttu við Bjarna Magnússon í leik Njarðvíkur og Grindavíkur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið