© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.12.2011 | 11:30 | Kristinn | FIBA, Landslið
Dregið í Evrópukeppni landsliða á sunnudag
Á sunnudaginn verður dregið hjá FIBA Europe í riðla fyrir komandi Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik. Það verður því spennandi að sjá að honum loknum með hvaða þjóðum við munum leika til að komast á EM í Slóveníu 2013.

Ísland mun leika í riðli með fimm öðrum þjóðum, einni úr hverjum styrkleikaflokk. Leikið verður heima og að heiman dagana 15. ágúst til 11. september.

Dregið verður í beinni útsendingu á vef www.fibaeurope.com á sunnudaginn kl. 11.45 að íslenskum tíma og verður byrjað að draga í keppni yngri landsliða áður en dregið verður í riðla A-landsliðanna.

Styrkleikariðlarnir eru eftirfarandi:
Stykleikaflokkur I: Serbía, Tyrkland, Þýskaland, Finnland, Georgía, Króatía.
Stykleikaflokkur II: Úkraína, Búlgaría, Pólland, Bosnía, Ísrael, Ítalía.
Stykleikaflokkur III: Svartfjallaland, Lettland, Belgía, Portúgal, Holland, Svíþjóð.
Stykleikaflokkur IV: Tékkland, Eistland, Holland, Sviss, Austurríki, Aserbaídsjan.
Stykleikaflokkur V: Hvíta Rússland, Slóvakía, Rúmenía, Albanía, Lúxemborg, Kýpur.
Stykleikaflokkur VI: Ísland.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Magnús Matthíasson og Henning Henningsson, leikmenn A-landsliðs karla.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið