© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.12.2011 | 7:10 | Kristinn
1. deild karla í kvöld og á morgun
Í kvöld fara fram fjölmargir leikir í 1. deild karla en þetta er næstsíðasta umferðin sem leikin verður fyrir áramót.

Breiðablik og ÍA eigast við í Smáranum í Kópavogi. Ármann tekur á móti FSu í Kennó og Þór Akureyri fær Hamar í heimsókn úr Hveragerði, en athygli er vakin á því að leikið er í Síðuskóla að þessu sinni fyrir norðan, en ekki í Höllinni líkt og venjulega. ÍG eiga svo heimaleik í Röstinni gegn Skallagrím.

Allir þessir leikir hefjast kl. 19.15 í kvöld.

Fyrir austan eigast við Höttur og KFÍ en sá leikur hefst kl. 20.00.

Höttur og KFÍ eigast svo við að nýju daginn eftir, á laugardaginn kl. 15.00, en félögin ákváðu að leika báða leiki sína gegn hvort öðru í sömu ferð. Í fyrra var sami háttur hafður á og þá var leikið fyrir vestan.

Allir leikir helgarinnar verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bjarni Gaukur Þórmundsson fylgist með efnilegum körfuboltamönnum á Elítubúðum KKÍ í Seljaskóla í júníbyrjun 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið