© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.4.2002 | 15:16 | bl
Haukar með kvennamót á Sumardaginn fyrsta
Körfuknattleiksdeild Hauka hefur ákveðið að endurtaka leikinn frá fyrra vori og efna til hraðmóts í mfl. kvenna. Mótið þótti takast vel í fyrra og komust færri lið að en vildu. Hugmyndin er sú að mótið setji punktinn yfir I-ið hjá kvennaliðunum og tákni nokkurskonar vertíðarlok körfuboltakvenna. Verðlaunin taka einmitt mið af því og felast að nokkru í kaloríum í formi skyndibitafæðis s.s. kjúklingi og ís. Eitthvað sem ekki má þegar tímabilið stendur yfir.

Mótið verður haldið sumardaginn fyrsta, þ. 25.4. n.k. á Ásvöllum frá kl. 16-22. Átta lið geta tekið þátt í mótinu og leikið verður í tveim riðlum í undanúrslitum. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli leika síðan í A-úrslitum og tvö neðri liðin leika í B-úrslitum. í úrslitum leikur svo lið A-1 við lið A-2 og og lið B-1 við lið A-2. Leiktími er 2x10 mín og klukka ekki stöðvuð nema seinustu mínútu í síðari hálfleik. Á milli undanúrslita og úrslita verður efnt til vítakeppni og 3ja stiga keppni milli fulltrúa liðanna. Þákktökugjald pr. lið er 6.000-. Hverju liði er síðan ætlað að skaffa 1 dómara, eða greiða aukalega 500. fyrir hvern leik.

Verðlaun:
1. sæti í A-úrslitum bikar og 12 máltíðir á KFC
1. sæti í B-úrslitum bikar og 12 máltíðir á KFC
f. vítakeppni: Viðurkenning og 12 stórir bragðarefir frá valinkunnri ísbúð.
f. 3ja-stigakeppni: Viðurkennig og 12 stórir skammtar af nammi frá landsþekktri gotterísfabrikku.

Frekari upplýsingar veita:
Sverrir Hjörleifsson í síma 898-1678, e-mail: sverrir@skyrr.is og
Henning Henningsson í síma 892-6359, e-mail: Henning@simi.is.

Ath. einungis er gert ráð fyrir 8 liðum í mótið og gildir sú regla að fyrstur kemur fyrstur fær.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrst körfuboltalið íslenskra starfsmanna á Keflavíkurflugvelli, Vikings, árið 1950.  Aftari röð frá vinstri: John Smith, Guðmundur Pétursson, Hörður Sumarliðason, Kristján Júlíusson, Friðrik Bjarnason og Hal Cromie.  Fremri röð frá vinstri: Hjálmar Guðmundsson, Pétur Guðmundsson og Ingi Gunnarsson.  John og Hal voru starfsmenn Lockheed og þjálfuðu íslensku strákana.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið