© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.11.2011 | 14:15 | Kristinn | 1. deild karla
1. deild karla í kvöld
Í kvöld fara fram þrír leikir í 1. deild karla.

KFÍ, sem situr á toppi deildarinnar, fær Þór frá Akureyri í heimsókn sem verma botnsætið. Hjá KFÍ er Ari Gylfason í banni en Þórsarar hafa nýlega fengið til liðs við sig fyrrum leikmann KFÍ, Darco Milosevic og Spencer Harris að auki.

Að venju munu KFÍ senda út á netinu, og verður leikurinn verður sýndur í HD gæðum frá Jakanum á Ísafirði á vef kfi.is.

Skallagrímur og ÍA mætast í Fjósinu í Borgarnesi. Skallagrímur hefur unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum og skagamenn tvo af fyrstu þrem.

Í Frystikistunni í Hveragerði verður svo sannkallaður suðurlandsslagur þegar Hamar fær FSu í heimsókn frá Selfossi.

Allir leikir kvöldsins verða í beinni tölfræðilýsingu hér á kki.is kl. 19.15.

Á morgun laugardag mætast svo ÍG og Breiðablik í Röstinni, Grindavík kl. 16.30.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Logi Gunnarsson sigraði í troðslukeppninni 2001 í tengslum við stjörnuleik KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið