© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.4.2002 | 16:58 | óój
Njarðvík einum sigri frá tólfta meistaratitlinum
Njarðvíkingar eru aðeins einum sigri frá tólfta meistaratitli félagsins eftir 96-88 sigur á Keflavík í öðrum leik liðanna í lokaúrslitum Epsondeildar karla. Njarðvík leiðir nú 2-0 í einvíginu og getur tryggt sér titilinn með sigri í Keflavík á þirðjudaginn.

Keflavík byrjaði leikinn þó mun betur og 53% þriggja stiga nýting (19/10) í fyrri hálfleik færði liðinu 13 stiga forskot í hálfleik, 44-57. En það var eins og Keflavíkurliðið hafi snöggkólnað í hálfleiknum, liðið klikkaði á öllum ellefu þriggja stiga skotum sínum í þriðja leikhluta og Njarðvík minnkaði muninn í 62-69 við lok hans. Í upphafi fjórða leikhluta fór Teitur Örlygsson í gang en hann gerði þá níu stig á fyrstu fjórum mínútum leikhlutans og níunda stigið kom Njarðvík yfir í 78-77 og eftir það kláruðu Njarðvíkingar þennan annan sigur í þessu einvígi og þann sjötta í síðustu sjö leikjum liðsins í úrslitakeppninni í ár.

Atkvæðamestir hjá Njarðvík:
Peter Philo 30 stig, 9 stoðsendingar, hitti úr 9 af 12 skotum og 10 af 14 vítum
Páll Kristinsson 17 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar
Brenton Birmingham 16 stig, 5 fráköst, 4 stoðs., 4 stolnir, hitti úr 6 af 11 skotum
Teitur Örlygsson 12 stig, 6 fráköst
Logi Gunnarsson 7 stig
Friðrik Stefánsson 6 stig, 9 fráköst, 4 varin, 3 stolnir

Atkvæðamestir hjá Keflavík:
Guðjón Skúlason 21 stig á 24 mín., hitti úr 7 af 14 skotum (4/10 í 3ja)
Damon Johnson 18 stig, hitti úr 7 af 19 skotum, 14 fráköst, 5 stoðs., 4 varin, 4 stolnir
Davíð Þór Jónsson 12 stig á 11 mín, hitti úr 4 af 5 skotum
Magnús Þór Gunnarsson 12 stig
Gunnar Einarsson 10 stig, 4/4 í skotum í fyrri hálfleik, 0/6 í seinni
Gunnar Stefánsson 7 stig
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka á leið til Akureyrar með leiguflugi árið 1983.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið