© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.4.2002 | 0:52 | óój
21 stigs sigur Njarðvíkinga í fyrsta leiknum í Keflavík
Njarðvík vann í kvöld 21 stigs sigur í Keflavík í fyrsta leik lokaúrslita Epsondeildarinnar í körfubolta en lokatölur urðu 68-89 fyrir Njarðvík. Njarðvík skoraði fyrstu sex stigin í leiknum, leiddi 18-24 eftir fyrsta leikhluta og með níu stigum í hálfleik, 35-44.
Því miður fraus uppfærslan á tölfræði leiksins á netið og þar til á morgun er aðeins hægt að sjá þar stigaskor leikmanna í leiknum. Tölfræðin ætti að koma inn strax í fyrramálið þegar kerfið verður endurræst. Hér eru annars atkvæðamestu menn í leiknum:

Atkvæðamestir hjá Keflavík:
Damon Johnson 21 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar, hitti úr 8 af 21 skoti (2/7 í 3ja), 4 tapaðir
Guðjón Skúlason 13 stig á 23 mín., hitti úr 5 af 13 skotum (3/7 í 3ja)
Gunnar Einarsson 11 stig, 7 fráköst, 3 stolnir, 3 varin, hitti úr 5 af 13 skotum (1/6 í 3ja)
Davíð Þór Jónsson 10 stig á 16 mín., hitti úr 4 af 8 skotum, 3 stoðsendingar
Sverrir Þór Sverrisson 6 stig, 4 fráköst, hitti úr 3 af 10 skotum

Keflavík hitti úr 28 af 81 skoti þar af 8/37 í 3ja. Keflavík nýtti aðeins 4 af 10 vítum. Keflavík tók 34 fráköst (10 í sókn) og tapaði 17 boltum.


Atkvæðamestir hjá Njarðvík:
Brenton Birmingham 21 stig, 10 fráköst, 4 stoðsendingar, 6 tapaðir boltar, hitti úr 8 af 13 skotum (5/9 í 3ja)
Logi Gunnarsson 18 stig, hitti úr 6 af 19 skotum (1/9 í 3ja)
Peter Philo 17 stig, 6 stoðsendingar, 8 tapaðir, hitti úr 4 af 9 skotum (4/8 í 3ja) og 5 af 6 vítum
Páll Kristinsson 11 stig, 10 fráköst, 3 stolnir, hitti úr 2 af 6 skotum og 7 af 9 vítum
Friðrik Stefánsson 10 stig, 14 fráköst (5 í sókn) 4 varin skot, hitti úr 4 af 7 skotum og 2 af 6 vítum
Teitur Örlygsson 6 stig á 23 mín., hitti úr 2 af 9 skotum öllum fyrir utan 3ja stiga línuna, 6 fráköst

Njarðvík hitti úr 27 af 68 skoti þar af 12/37 í 3ja. Njarðvík nýtti 23 af 31 víti. Njarðvík tók 52 fráköst (14 í sókn) og tapaði 26 boltum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Morgunteygjuæfingar á hótelinu í Istanbul undir stjórn Brynjars Bergmanns
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið