© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.10.2011 | 12:39 | Kristinn | Iceland Express-deildin
Myndbrot: Jón Arnór gegn Keflavík 2009
Við höldum áfram með flokkinn „Frægar Flautukörfur" hér á KKÍ.is en um er að ræða eftirminnilegar flautukörfur í íslenskri körfuboltasögu.

Einn eftirminnilegasti leikur í seinni tíð fór fram þann 27. mars 2009 í úrslitakeppninni það árið. Um var að ræða leik þrjú milli KR og Keflavíkur í DHL-höllinni. Jón Arnór skoraði þar ótrúlega þriggjastiga-flautukörfu sem tryggði KR aðra framlengingu í leiknum af samtals fjórum í leiknum.

Gangur leiksins
Jesse Pellot-Rosa jafnaði í 88:88 í lok venjulegs leiktíma og KR náði ekki að tryggja sér sigur í næstu sókn á eftir. Við lok fyrstu framlengingar jafnaði Keflavík enn á ný þar sem Sigurður Gunnar Þorsteinsson jafnaði leikinn og önnur framlenging staðreynd.

Gunnar Hafsteinn Stefánsson skoraði þriggja stiga körfu og kom Keflavík í 105:108 þegar aðeins 6.29 sek. voru eftir af leiktímanum þegar KR tók leikhlé og svo innkast á miðjunni.

KKÍ.is hafði samband við Jón Arnór og spurði hann um hans upplifun á körfunni:
„Ég man vel eftir þessu, um leið og ég sleppti boltanum þá leið mér mjög vel með skotið. Ég náði mjög góðu "look-i" á körfuna þó að skotið hafi verið úr jafnvægi. Auðvitað var þetta algjör grís samt í andlitið á Big Country!" sagði Jón Arnór og á þar við Sigurð Gunnar, samherja sinn í landsliðinu og leikmann Grindavíkur.

„Þetta var maraþon leikur og ég fauk útaf með fimm vilur ekki löngu eftir flautukörfuna, en við kláruðum þetta. Stemningin inn í klefa var góð enda komnir í úrslit og allt að gerast".




Dramatíkin hélt áfram því í lok 3. framlengingar jafnaði Jason Dourisseau leikinn með víti í 116:116, en klikkaði á seinna skotinu og Jesse Pellot-Rosa klikkaði úr þriggjastiga skoti fyrir Keflavík í næstu sókn og því þurfti að framlengja í fjórða sinn.

Þar vann KR framlenginguna 13-8 og hafði sigur 129:124 í frábærum leik. Þar með sigruðu þeir undanúrslitin 3-0 og mættu Grindavík í úrslitunum eins og frægt er orðið. Hægt er að skoða tölfræðina og gang leiksins hérna.

Fyrri flautukörfur:
Jakob Örn gegn Georgíu.
Pálmar gegn Noregi.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Átján ára lið Íslands mætti Kuwait í æfingaleik sumarið 2009 þegar lið Íslands tók þátt í B-deild Evrópukeppninnar. Keppt var í Sarajevó ó Bosníu. Kuwait var þarna í æfingaferð og léku liðin æfingaleik. Ísland vann öruggan sigur 103-40.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið