© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.9.2011 | 13:28 | Kristinn | FIBA
FIBA Asia: Kína og Jórdanía leika til úrslita í dag
Í dag að íslenskum tíma lýkur FIBA Asia-keppninni sem fram fer í Wuhan í Kína, en það er Asíumeistaramótið líkt og Evrópumótið sem fram fór í Litháen.

Sjá nánar um keppnina hérna

Nú fyrr í dag lauk leiknum um bronsið en það hafði Kórea betur gegn Filippseyjum. Íran hafnaði í fimmta sæti og Líbanon í því sjötta.

Það hefur greinilega reynst kínverska liðinu vel að leika tvo æfingaleiki gegn Íslandi í byrjun mánaðarins en því hefur gengið vel á mótinu og leikur til úrslita síðar í dag og mætir þar Jórdaníu í leiknum um gullið. Kína taldi að leikur íslenska liðsins væri svipaður og hjá væntanlegum mótherjum í keppninni og hafa leikirnir vonandi nýst þeim vel líkt og þeir gerðu okkar liði.

Alheimssamtök FIBA tilkynntu í lok vikunnar nýjan samstarfsaðila sinn á heimsvísu og er það PEAK íþróttavöruframleiðandinn sem þar um ræðir. Það er íslendingum vel kunnugt, en það hefur nú verið að hasla sér völl á íslenskum markaði síðastliðin ár. KKÍ og PEAK gerðu nýverið einnig með sér samstarfssamning og leikur og klæðist íslenska landsliðið búningum og fatnaði PEAK. Þá mun PEAK vera styrktaraðili á öllum helstu viðburðum á vegum FIBA í öllum heimsálfum.

Sjá nánar um samningin hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslensku stelpurnar búnar að koma sér vel fyrir áður en haldið er á æfingu í Sviss í ágústmánuði 2009. Ísland atti kappi við Sviss í B-deild Evrópukeppninnar laugardaginn 15. ágúst. Sviss vann nauman sigur 70-68 í hörkuleik.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið