S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
Kína 80 - 66 Ísland lokatölur
Ísland náði að minnka munin í 8 stig á tímabili okkar menn hittu illa á meðan Kínverjar settu sín skot niður og héldu muninum óbreyttum. Þá er bara fyrir íslenska liðið að undirbúa sig fyrir seinni leikinn á sunnudaginn kemur. Á morgun þarf liðið að ferðast í tveimur innanlandsflugum á næsta áfangastað þar sem seinni leikurinn fer fram. Fyrst er flogið til Shangai og þaðan til Changsha. Fra Changsha er svo tveggja tíma akstur í rútu til Loudi City þar sem seinni leikurinn fer fram á sunnudag. KKÍ færir fréttir af tölfræði um leið og hægt er úr leiknum í dag, og mun fylgjast með því hvort að seinni leikurinn verði ekki aðgengilegur á netinu líkt og leikurinn í dag. Kína 30-26 Ísland í hálfleik Nú er hálfleikur í leik Kína og Íslands sem fram fer ytra. Ísland byrjaði betur og Jakob og Jón Arnór skoruðu fyrstu 6 stig Íslands með þriggjastiga körfum. Íslenska liðið hefur náð að opna varnir kínverja og fengið opin skot bæði fyrir utan og innan teigs og átt nokkrar hraðaupphlaupskörfur. Staðan var 16-24 í öðrum leikhluta en þá áttu heimamenn gott áhlaup og breyttu stöðunni í 30-26. Íslenska liðið hefur tapað nokkrum boltum í fyrri hálfleik en annars spilað fína vörn framan af og Kínverjar hafa ekki hitt vel né fengið mikið af auðveldum skotum inni í teig. Við höldum áfram að fylgjast með leiknum og færa fréttir af gangi mála. Stig Íslands í dag Jón Arnór Stefánsson 18 stig, Jakob Örn Sigurðarson 17 stig, Hlynur Bæringsson 14 stig og 6 fráköst, Pavel Ermolinskij 7 stig og 10 fráköst, Ægir Þór Steinarsson skoraði sín fyrstu 4 stig fyrir A-landsliðið, Brynjar Þór Björnsson 2 stig, Ólafur Ólafsson 2 stig og Finnur Atli Magnússon 2 stig. |