© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.9.2011 | 14:00 | Kristinn | KKÍ, Landslið
Íslenska A-landslið karla til Kína
Í fyrramálið heldur íslenska landsliðið til Kína í æfingaferð í boði kínverska körfuknattleikssambandsins.

Liðið leikur tvo leiki gegn heimamönnum.

Héðan frá Íslandi heldur hluti leikmanna og fararstjórn til móts við þá sem eru erlendis og sameinast allir í Stokkhólmi áður en haldið er til Kína.

Kínverska körfuknattleikssambandið greiðir allan kostnað vegna fararinnar, það er öll flug, ferðalög milli keppnisstaða, gistingu og fæði. Þetta er í annað sinn á 6 árum sem kínverska körfuknattleikssambandið býður því íslenska til Kína. Kína bar sigur á Íslandi í báðum leikjunum í ágúst 2005.

Kína lítur á Ísland sem góðan kost í sínum undirbúningi fyrir Asíuleikana sem fara fram seinna í september þar sem leikstíll okkar er ekki ósvipaður og hjá sumum af andstæðingum kínverska liðsins á leikunum. Markmið Kína er að komast á Olympíuleikana í London 2012.

Það verður talsvert ferðalag á hópnum innan Kína þar sem m.a. þarf að fljúga í tveimur flugum til að komast til borgarinnar þar sem seinni leikurinn fer fram.

Fyrri leikur liðsins fer fram föstudaginn 9. september í Xuchang City en seinni leikurinn fer fram sunnudaginn 11. september í Loudi City.

Tvær breytingar hafa orðið á liðinu frá því liðið fór á Norðurlandamótið í síðasta mánuði en þeir Hörður Axel Vilhjálmsson og Haukur Helgi Pálsson gátu ekki farið með liðinu til Kína og hafa þeir Ægir Þór Steinarsson og Jón Ólafur Jónsson verið valdir í þeirra stað.

Tímamismunur er +9 klukkustundir en KKÍ mun birta fréttir og myndir úr ferðinni á kki.is og fleiri upplýsingar þegar nær dregur leikjunum.

Liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum:

4 · Brynjar Þór Björnsson · Jamtland, Svíþjóð
Hæð 190 cm · Fæddur ‘88 · 13 landsleikir

5 · Jón Ólafur Jónsson · Snæfell
Hæð 198 cm · Fæddur ‘81 · Nýliði

6 · Jakob Sigurðarson · Sundsvall, Svíþjóð
Hæð 192 cm · Fæddur ‘82 · 48 landsleikir

7 · Finnur Atli Magnússon · KR
Hæð 205 cm · Fæddur ‘85 · 6 landsleikir

8 · Hlynur Bæringsson · Sundsvall, Svíþjóð
Hæð 200 cm · Fæddur ‘82 · 51 landsleikir

9 · Jón Arnór Stefánsson · CAI Zaragoza, Spáni
Hæð 196 cm · Fæddur ‘82 · 51 landsleikir

10 · Helgi Már Magnússon · Uppsala, Svíþjóð
Hæð 197 cm · Fæddur ‘82 · 66 landsleikir

11 · Ólafur Ólafsson · Grindavík
Hæð 190 cm · Fæddur ‘90 · 4 landsleikir

12 · Pavel Ermolinski · Sundsvall, Svíþjóð
Hæð 200 cm · Fæddur ‘87 · 18 landsleikir

13 · Ægir Þór Steinarsson · Fjölnir / Newberry College
Hæð 188 cm · Fæddur ‘88 · Nýliði

14 · Logi Gunnarsson · Solna, Svíþjóð
Hæð 190 cm · Fæddur ‘81 · 80 landsleikir

15 · Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Grindavík
Hæð 204 cm · Fæddur ‘88 · 25 landsleikir

Þjálfari: Peter Öqvist
Aðstoðarþjálfari: Helgi Jónas Guðfinnsson
Aðstoðarþjálfari: Pétur Már Sigurðsson
Sjúkraþjálfari: Haukur Þór Sveinsson
Fararstjórar: Eyjólfur Þór Guðlaugsson og Friðrik Ingi Rúnarsson
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Albert Óskarsson í loftfimleikum í leik gegn Luxembourg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið