© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.8.2011 | 13:15 | Kristinn | FIBA
EM hefst eftir 2 daga


Eftir aðeins tvo daga, á miðvikudaginn kemur kl. 13.15 að íslenskum tíma, er komið að því að Evrópukeppnin 2011 hefjist í Litháen.

Liðin 24 eru orðin klár en Finnar og Portúgal náðu að tryggja sér siðustu sætin á lokakeppninni í ár.

Mörg þessara liða hafa verið að spila æfingaleiki að undanförnu og verið að fíntpússa leikmannalistana sína fyrir brottför til Litháen. Íslandsvinirnir sem landsliðið spilaði gegn í Evrópukeppninni 2009, lið Svartfjallendinga, lék æfingaleik gegn Tyrkjum nú á dögunum og eftir jafnan leik höfðu tyrkirnir tveggja stiga sigur.

Emes Kanter, nýliði í NBA og í landsliði Tyrkja var stigahæstur með 13 stig og 8 fráköst en Svartfjallaland lék án sinnar helstu stjörnu í teignum Nikola Pekovic sem var hvíldur vegna smávægilegra meiðsla.

Ólafur Rafnsson lagði af stað í morgun til Litháen en hann mun að sjálfsögðu setja mótið, sinna skyldustörfum á meðan því stendur og veita sigurverðlaunin í mótslok sem forseti FIBA Europe.

Sjá nánar á eurobasket2011.com.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fannar Ólafsson þakkar Hlyn Bæringssyni fyrir leikinn eftir fimmta leik KR og Snæfells í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar, sem KR vann í framlengingu eftir að hafa jafnað leikinn með ævintýralegum hætti í lok venjulegs leiktíma.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið