© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.7.2011 | 12:10 | FÍR
Einar Árni útskrifaður úr þjálfaraverkefni FIBA Europe
FIBA Europe hefur undanfarin ár verið með þjálfaraverkefni fyrir aðildarlönd sín sem spannar þrjú sumur hvert verkefni.

KKÍ valdi Einar Árna Jóhannsson árið 2009 til að vera fulltrúa okkar í þessu verkefni. Hvert aðildarland FIBA Europe á eitt öruggt sæti en einungis eru 60 teknir inn hverju sinni.

Þetta er býsna strembið nám og þurfa allir sem taka þátt að taka verkleg, skrifleg og munnleg próf á hverju sumri.

Verkefnið er sett þannig upp að fyrsta sumarið fer það fram í tengslum við A-deild U-16 ára landsliða, sumar tvö fer fram í tengslum við A-deild U-18 ára og síðasta sumarið fer fram þegar A-deild U-20 ára fer fram og var Einar einmitt staddur í Bilbao þegar Spánn varð Evrópumeistari eftir sigur á Ítali nú um helgina.

Það er hinn frábæri þjálfari Svetislav Pesic sem er aðalmaðurinn á bak við þetta þjálfaraverkefni og er hann sá sem setur það upp. Hann nýtur svo stuðnings margra af færustu þjálfurum Evrópu fyrir unga leikmenn.

Einar Árni útskrifaðist úr þessu verkefni um síðustu helgi og tók hann við Diploma skjalinu úr höndum landa síns, Ólafi Rafnssyni forseta FIBA Europe.

KKÍ óskar Einari til hamingju með þennan frábæra árangur.

Lárus Jónsson og Hjalti Vilhjálmsson eru að hefja sitt nám í sumar og ef allt gengur upp hjá þeim þá útskrifast þeir 2013.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Torfi Magnússon landsliðsþjálfari, og Stefán Arnarson aðstoðarþjálfari, með leikhlé.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið