© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.8.1999 | 8:34 | -
Sigur á Írlandi, tap í Svíþjóð
Evrópukeppni unglingalandsliða hélt áfram í gær, 20 ára lið Íslands lék gegn Rússum og tapaði 81-104 (45-59). Leikurinn var í jafnvægi framan af og þegar Andrei Kirilekov var utan vallar hjá Rússum, þessi leikmaður gerði 25 stig í f.h. og 34 stig alls. Hann mun ganga til liðs við Utah Jazz eftir 2 ár. Íslendingar náðu ekki að fylgja eftir góðum fyrri hálfleik í þeim seinni og 23 stiga tap varð því staðreynd. Örlygur Sturluson var stigahæstur og skoraði 20 stig, átti 11 stoðsendingar og stal 5 boltum. Sævar Sigurmundsson var besti maður liðsins, skoraði 18 stig og tók 12 fráköst, I. Magni Hafsteinsson skoraði 13 stig, Guðlaugur Eyjólfsson skoraði 11 stig (50% 3ja stiga nýting), Morten Szmiedowicz 4 stig, Jón N. Hafsteinsson 4 stig, Logi Gunnarsson 4 stig, Einar Aðalsteinsson 3 stig, Sæmundur Oddsson 2 stig og Ísak Einarsson 2 stig.
18 ára liðið lék aftur á móti við Belga og sigraði 76-67. Þessi leikur var frábær að Íslands hálfu, Íslendingar voru yfir allan leikinn og sýndu ótrúlega baráttur og skynsemi. Helgi Freyr Margeirsson skoraði 20 stig (50% 3ja stiga nýting), Jón Arnór Stefánsson 17 stig (60% 3ja stiga nýting og 5 stoðsendingar), Hlynur Bæringsson 15 stig (11 fráköst), Ómar Sævarsson 8 stig, Hjalti Kristinsson 6 stig, Jakob Sigurðsson 5 stig, Ólafur Sigurðsson 4 stig og Andri F. Ottósson 1 stig.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn, þjálfarar, fararstjórar og dómarar sem fóru fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótið árið 2004 í Solna í Svíþjóð.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið