© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.7.2011 | 19:00 | Kristinn | Landslið
Leikmannakynning: Logi #14
Logi Gunnarsson leikmaður Solna í Svíþjóð er númer 14 í íslenska liðinu og er Logi jafnframt elsti og leikjahæsti leikmaður liðsins.

Fullt nafn: Logi Gunnarsson
Hæð:189
Aldur: 29
Gælunafn:

Giftur / sambúð? Giftur Birnu Björk Þorkelsdóttur
Börn: Sara Björk 3 ára og Logi Örn 21 mánaða.

Hvað eldaðir þú síðast?Gómsætar svínasteikur

Ertu matvandur, er eitthvað sem þú borðar alls ekki? Nei, borða flest allt

Hvað seturðu á pizzuna þína? skinku , sveppi og pepparoni

Uppáhalds vefsíða? karfan.is

Frægasti vinur þinn á Facebook? Helgi Magnússon, allavegana frægur í Stokkhólmi. Vaskar reglulega.

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki (ef já, hvernig þá)? Já , reyni að gera allt á svipaðan hátt þegar vel gengur.

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Teitur Örlygsson

Erfiðasti andstæðingur? Það eru nokkrir góðir, Litháinn Sarunas Jasikevicius stendur uppúr,

Sætasti sigurinn? Bikarúrslit 2002 á móti KR

Mestu vonbrigði? Tap í úrslitaleik með Gijon á Spáni 2008

Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum í þitt lið, hver yrði það? Steve Nash

Segðu okkur frá skemmtilegu / skondnu atviki sem gerst hefur í leik: Í leik með Njarðvík 2002 var Halldór Karlsson aðeins of ákafur, hann renndi sér með fæturnar á undan sér í andstæðinginn ( flestir miðverðir í knattspyrnu hefðu verið ánægðir með þessa tæklingu, hefði samt verið gult spjald). Enginn meiddist sem betur fer:)

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? haustið 1997, 15 ára.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Sumarbústaður foreldra minna í Grímsnesi

Vandræðalegasta augnablik? Frekar heppin hvað það varðar, man ekki eftir neinu svakalegu.

Hver á ljótasta bílinn í liðinu? Erfitt að gera upp á milli okkar, það eru fáar glæsikerrur

Hver er fyndnastur í liðinu? Óli litli nýliði kemur oft með góðar línur

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Tek koddan minn á alla þá staði sem ég sef á, hvar sem er í heiminum.

Uppáhalds:
Lið í NBA: New York Knicks
Lið í Evrópska körfuboltanum: Ekkert eitt, fylgist með flestum topp liðunum.
Leikmaður í körfu: Michael Jordan
Erlenda hljómsveit: Cold play
Innlenda hjlómsveit: Sálin
Bíómynd: Braveheart
Sjónvarpssería: Curb your enthusiasm, Seinfeld
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið