© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.7.2011 | 14:00 | Kristinn | Landslið
Leikmannakynning: Jón Arnór #9
KKÍ.is heldur áfram að kynna til leiks leikmenn liðsins sem leikur á NM 2011 í Svíþjóð. Næsti leikmaður sem við kynnum til leiks er Jón Arnór Stefánsson, leikmann CB Granada á Spáni.

Fullt nafn: Jón Arnór Stefánsson
Hæð: 195 cm
Aldur: 28 ára
Gælunafn: Nonni

Giftur / sambúð? Sambúð með Lilju Björk Guðmundsdóttur
Börn: 1 nýfæddur drengur

Hvað eldaðir þú síðast? Ég grillaði heilan kjúkling og sætar kartöflur og bar það fram með fersku salati.

Ertu matvandur, er eitthvað sem þú borðar alls ekki? Ég er mikill mat maður og borða nánast hvað sem er.

Hvað seturðu á pizzuna þína? Eins margar áleggstegundir og komast fyrir á pizzunni

Uppáhalds vefsíða? www.kki.is

Frægasti vinur þinn á Facebook? Er ekki með Facebook

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki (ef já, hvernig þá)? Nei

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Michael Jordan

Erfiðasti andstæðingur? Að finna hvatningu á hverjum degi til að verða betri í körfubolta

Sætasti sigurinn? Síðasti sigur er sætastur

Mestu vonbrigði? Bikarleikur 2009 móti Stjörnunni situr í mér

Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum í þitt lið, hver yrði það? Einn af góðum vinum mínum úr landsliðinu

Segðu okkur frá skemmtilegu / skondnu atviki sem gerst hefur í leik: Það var alltaf skemmtilegt að sjá troðið yfir Skarphéðinn Ingason í leik.. og það gerðist ansi oft.

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Árið 2000, 18 ára gamall

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Ísland er minn staður, hér líður mér best.

Vandræðalegasta augnablik? Það fyrsta sem kemur upp í hugann er þegar ég var hjá Dallas og það var verið að kynna mig og hina nýliða liðsins. Þetta fór fram í stóru höllinni og þarna voru mættir helstu stuðningsmenn liðsins sem voru örugglega um 5000 talsins. Við vorum settir í gegnum skotdrill sem átti að gleðja áhorfendur og um leið sýna hvað í okkur bjó. Ég fór fyrstur af stað og ég man að ég hef aldrei verið eins stressaður á ævi minni þegar ég henti upp fyrsta boltanum og um leið fyrsta loftboltanum í þessari umferð. Þeir urðu á endanum 3 talsins loftboltarnir og einungis 4 skot rötuðu rétta leið af 15. Og menn spyrja mig í dag af hverju ég hélt ekki áfram hjá Dallas? Þetta er ástæðan, skotdrillið, Mark Cuban sat nefnilega í stúkunni.

Hver á ljótasta bílinn í liðinu? Þjálfarinn okkar Peter Öqvist

Hver er fyndnastur í liðinu? Ef 26 manna æfingahópurinn telst með þá verð ég að segja Raggi Nadal!

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Ég hræðist meira að tala fyrir framan stóran hóp af fólki en dauðann sjálfan!

Uppáhalds:
Lið í NBA: ekkert sérstakt
Lið í Evrópska körfuboltanum: Barcelona
Leikmaður í körfu: Juan Carlos Navarro
Erlenda hljómsveit: The Smiths
Innlenda hjlómsveit: Sigur Rós
Bíómynd: The Shawshank Redemption
Sjónvarpssería: Sopranos
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fréttamenn Stöðvar 2, þeir Einar Bollason og Valtýr Björn Valtýsson, í beinni útsendingu frá stjörnuleik NBA í Phoenix í Bandaríkjunum í febrúar 1995,
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið